Síðastliðna daga hafa Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður, og Stefán Ingvar Vigfússon, uppistandari og pistlahöfundur, háð ritdeilur.
Í gærkvöldi bætti Brynjar við innleggi í deiluna á Facebook-síðu sína, þar sem hann sakar Stefán um að vera gríðarelga móðgunargjarnan.
„Ég upplifi að menn eru oftar móðgaðir nú en áður. Er sérstaklega vinsælt að vera sármóðgaður fyrir hönd annarra. Kannski er þetta ekkert nýtt heldur bara það að nú er auðveldari vettvangur til að koma hneykslun sinni á framfæri. Mér sýnist sármóðgaðir hafi yfirtekið samfélagmiðilinn Tvitter. Þar keppast menn við að móðgast sem mest með tilheyrandi stóryrðum og látum og halda að sé merki um mikla manngæsku og samhygð.“
Þess má geta að Brynjar minnist ekki á Stefán í færslu sinni, en talar um uppistandara og vísar þar augljóslega í hann. Brynjar virðist meira að segja ganga svo langt að segja að Stefán sé hreinlega ekki skemmtilegur í sínu daglegu lífi.
„Jafnvel menn sem vinna við að gera grín að öðrum, svokallaðir uppistandarar, eru sármóðgaðir yfir öllu og þarf ekki meira til en að einhver er ósammála þeim. Sennilega rétt hjá Ricky Gervais, frægum breskum uppistandara, sem sagði að það væri hrein undantekning að uppistandarar væru fyndnir og skemmtilegir í sínu daglegu lífi.“