Brynjar skilur ekkert í gagnrýninni á Inga: „Enn að gaspra og hneykslast“

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekkert hæft í gagnrýni frambjóðenda á fyrirkomulag talningarinnar í Norðvesturkjördæmi. Frambjóðendur á borð við Magnús Norðdal, Guðmund Gunnarsson, Karl Gauti Hjaltason auk Píratans Jóns Þórs Ólafssonar hafa farið mikinn í gagnrýni sinni sem beinist helst að Inga Tryggvasyni, oddvita yfirkjörstjórnarinnar, hefur Jón Þór núna kært Inga til lögreglu þar sem Ingi gæti hafa verið einn með atkvæðunum.

Brynjar segir á Facebook:

„Við erum enn, átta vikum eftir kosningar, að ræða mál sem ekkert er. Ágallar við framkvæmd kosninga gerast í hverjum kosningum í öllum lýðræðisríkjum. Lögin eru skýr um hvað gera skal þegar ekkert hefur fram komið sem gefur okkur ástæðu til að ætla að niðurstaða kosninganna sé röng,“ segir hann. „Samt eru þingmenn og fjölmiðlamenn enn að gaspra og hneykslast og láta eins og lýðræðið og réttarríkið sé hér undir.“

Hann segir að búið sé að útskýra allt málið.

„Birgir Ármannsson fór mjög vel yfir málið í Kastljósinu í gær og gat útskýrt þetta á mannamáli þannig að allir ættu að skilja. Nema kannski fulltrúi pírata, sem einnig var í Kastljósinu. Ef ástæða er til að hneykslast á einhverju þá er það sú afstaða einstakra þingmanna að lögin eigi að víkja fyrir þeirra eigin réttlætismati.“

Hann beinir því svo til stjórnmálamanna og fjölmiðla að hætta að bera saman þetta mál og niðurstöðu Hæstaréttar um kosningarnar til Stjórnlagaþings. „Um þær kosningar giltu bara önnur lagaákvæði í veigamiklum atriðum.“