Mikill hitabylgja er í gangi í Evrópu um þessar mundir og ákvað aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, Brynjar Níelsson, að skella sér til Mallorca til að upplifa þessa „fordæmalausa hitabylgjuþ“
„Skellti mér til Mallorca til að upplifa fordæmalausa hitabylgju. Hitinn reyndist rétt í meðallagi og ef ég væri eins og Silli í Spaugstofunni myndi ég heimta endurgreiðslu,“ skrifaði Brynjar í pistli rétt fyrir helgi.
„Ég hélt líka að eyjan væri spænsk en hún virðist vera þýsk að minnsta kosti sá hluti hennar sem ég bý í. Það eru 20 sjónvarpstöðvar og allar þýskar. Að auki er ein ljósblá stöð, líka þýsk, en hún dugar ekki til að koma gamla díseljálkinum í gang.
„Nú eyði ég öllum stundum með Ilse, Hilde, Wolfgang og Hans og nota menntaskólaþýskuna og það sem lærði úr Derrick þáttunum og þýsku 8 mm myndunum sem ekki voru ætlaðar börnum. Þetta dugar glettilega, sérstaklega eftir nokkra,“ skrifar Brynjar að lokum.