Brynjar sendir Gísla Marteini eitraða pillu: Segir hatur sumra á einkabílnum orðið yfirþyrmandi

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, skýtur föstum skotum að Gísla Marteini Baldurssyni, sjónvarpsmanni og fyrrverandi borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.

Eins og Hringbraut sagði frá í gær birti Gísli Marteinn færslu á Twitter þar sem hann setti út á plássið sem bílskúrar taka í húsum. Gísli birti mynd máli sínu til stuðnings og sagði:

„„Það er sturlað, en engu að síður staðreynd, að tugir þúsunda Íslendinga vilja hús þar sem bílaherbergið er stærra en barnaherbergið. Áhugaverð forgangsröðun.“

Brynjar skaut á Gísla á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi án þess þó að nefna hann á nafn. Augljóst er þó við hvern er átt í færslu Brynjars. Hann sagði:

„Hatrið hjá sumum á einkabílnum er orðið svo yfirþyrmandi að það er farið að fárast yfir bílskúrum líka. Þeir sem gera lítið annað en að blaðra á ljósvakamiðlum á kostnað almennings vita ekki að það er hrein undantekning að bílar komi inn í bílskúra. Þeir eru fyrst og fremst geymslur eða notaðir fyrir smíðar, bruggun eða aðrar tómstundir. Kannski þarf að rífa bílskúrana af feminískum ástæðum þar sem karlar nota þá frekar en konur.

Þeir sem tala mest um frelsið, og halda að það snúa bara að þeim en ekki öðrum, vita ekki að einkabíllinn var mesta frelsismál almennings á 20 öldinni.“