Brynjar Níelsson hefur farið mikinn á Facebook undanfarna daga með færslum af ræktarferðum sínum. Þá hefur kastljósið helst beinst að getnaðarlim hans síðustu daga þar sem frægt var þegar tónlistargoðið Bubbi Morthens bað Brynjar vinsamlegast um að hlífa sér – typpið á Brynjari væri eitthvað sem hann vildi alls ekki sjá.
Brynjar sér að sér eftir grafískar lýsingar úr karlaklefa líkamsræktarstöðvarinnar. Hann segist hafa logið upp á blásaklausan baðvörð: „Ég hef greinilega gengið aðeins of langt í sögum úr líkamsræktinni. Laug blygðunarlaust upp á saklausan baðvörð sem hefur orðið fyrir aðkasti og treystir sér ekki í vinnuna lengur.“
Hann segist einfaldlega hafa verið að leggja lóð sitt á vogarskálarnar í hina lokuðu umræðu um kynfæri karla: „Ég var bara að opna umræðuna um typpið, sem hefur verið hálfgert tabú og einkennst af neikvæðni og fordómum. Það má ekki einu sinni taka myndir af typpum, hvað þá deila þeim,“ segir Brynjar.
Hann segir að það halli á typpin: „Svo gengur maður um Ráðhúsið og þá blasa við manni óumbeðnar píkumyndir. Mér finnst þetta vera jafnréttismál.“
Brynjar segist aðeins hafa verið að stríða Bubba: „Og til að fyrirbyggja allan misskilning þá finnst mér Bubbi bæði fyndinn og skemmtilegur. Hann á fyndnustu setningu á fésbókinni sem ég hef lesið þegar hann sagði mig vera torfbæ í jakkafötum. Tær snilld og heilmikill sannleikur í þessari stuttu setningu. Ég er bara að atast í Bubba í von um að hann semji um mig ljóð eða dægurlagatexta. Er að vísu að verða úrkula vonar um að það gerist.“
Þarna gæti Brynjar hafa lokað umræðunni um typpið á sér, en það verður tíminn einn að leiða í ljós.