Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir vandann í íslenskri pólitík vera að þar sé fjöldinn allur af fólki sem eigi ekkert erindi.
Þá telur hann Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur, þingmann Pírata, og Helgu Völu Helgadóttur, þingmann Samfylkingarinnar, hafa „lítið sem ekkert fram að færa í pólitík.“
Þetta segir í Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann svarar gagnrýni á fyrri færslur sínar um sóttvarnarhliðarspor Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins.
Ég gaf í gær landsmönnum nokkuð greinargóða lýsingu á líkamlegu og andlegu ástandi mínu á erfiðum tímum. Ekki fór sú...
Posted by Brynjar Níelsson on Sunday, December 27, 2020
Segist ekki verja fjármálaráðherra
„Í færslu minni í gær var ég hvorki að gera lítið úr mikilvægi sóttvarna né að verja fjármálaráðherra. Ráðherrann hefur gengist við mistökum sínum og beðist fyrirgefningar á skorti á árvekni. Skil mjög vel reiði fólks við þær aðstæður sem ríkja í samfélaginu. Okkur verður öllum á þegar kemur að sóttvörnum, sérstaklega við aðstæður sem við höfum ekki fulla stjórn á. Skiptir þá ekki máli hvort við erum læknar sem stjórnum öldrunardeildum, ráðherrar, þingmenn eða hluti að Þríeykinu.
Tvær síðustu færslur mínar voru hins vegar um stjórnmálamenn sem hafa lítið sem ekkert fram að færa í pólitík og nota því hvert tækifæri til að skapa upplausn.“
Í þeim færslum koma bæði Þórhildur Sunna og Helga Vala við sögu en báðar hafa verið mjög gagnrýnar á hegðun fjármálaráðherra og viðbrögð ríkisstjórnarflokkanna. Brynjar heldur áfram:
„Sjálfir hafa [umræddir þingmennirnir] ekki verið tilbúnir að taka ábyrgð á gerðum sínum og orðum. Dettur ekki í hug að biðjast fyrirgefningar, ekki einu sinni velvirðingar, en alltaf fyrstir upp á dekk til að ráðast á aðra sem verður á í messunni. Og til að kóróna allt trúa að þeir séu boðberar heiðarlegra stjórnmála.“
Hér má sjá þær eldri færslur sem Brynjar vísar til:
Þetta er búinn að vera viðburðaríkur dagur hjá mér. Reisti mig upp úr sófanum eftir samfellda legu frá þinglokum. Það...
Posted by Brynjar Níelsson on Saturday, December 26, 2020
Ég sé að hælbítarnir taka sér ekki frí um jólin frekar en fyrri daginn. Ekki einu sinni þeir sem brjóta siðareglur og...
Posted by Brynjar Níelsson on Friday, December 25, 2020