Brynjar segir þing­menn hafi sýnt full­komna van­þekkingu á fundi um efna­hags­mál: „Á­­stæða til nokkurs hroka af minni hálfu“

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra og vara­þing­maður, skrifar um efna­hags­á­standi á Face­book- síðu sinni.

„Verð­bólgan er nú komin í tveggja stafa tölu. Eins og alltaf er það öðrum að kenna en okkur sjálfum, helst seðla­banka­­stjóra og fjár­­mála­ráð­herra. Á fundi efna­hags- og við­­skipta­­nefndar með seðla­banka­­stjóra birtist okkur full­komin van­þekking þing­manna stjórnar­and­­stöðunnar á efna­hags­­málum. Því er á­­stæða til nokkurs hroka af minni hálfu,“ skrifar Brynjar.

Eins og Inn­herji greindi frá á dögunum spurði Ást­hildur Lóa Þórs­dóttir, þing­maður Flokk fólksins, ansi sér­stakra spurninga á fundi nefndarinnar með seðla­banka­stjóra.

Hann bar undir hann kenningu sem stangast á við hag­fræði, hag­söguna og al­menna skyn­semi að mati Inn­herja er hún spurði hvort að stýri­vaxta­hækkanir Seðla­banka Ís­lands væru ekki verð­bólgu­hvetjandi í ljósi þess að fyrir­tæki myndu velta auknum fjár­magns­kostnaði út í verð­lagið.

Ás­geir benti á hið aug­ljósa, þ.e.a.s. að stýri­vextir væru helsta tæki seðla­banka og að þeim hefði verið beitt í tvö eða þrjú hundruð ár.

„Það er skýrt að hærri fjár­magns­kostnaður dregur úr fjár­festingu, dregur úr lán­tökum – það er það sem við erum að huga að – og kælir hag­kerfið. Það þekkjast engin dæmi um að að stýri­vextir hækki verð­bólgu með þeim hætti sem hér er nefnt,“ sagði Ás­geir en Inn­herji greinir frá..

Brynjar hefur fengið sig full­saddan á svona spurningum.

„Verð­bólga eykst fyrr eða síðar þegar laun hækka meira en inni­­stæða er fyrir. Laun hafa hækkað yfir tuttugu prósent frá því að kovíd lét á sér kræla og um sjö­tíu prósent á síðustu níu árum. Þessar launa­hækkanir eru ó­­þekktar annars staðar í ver­öldinni,“ skrifar Brynjar.

„Að auki fylgdu kröfur um aukin út­­gjöld ríkis­­sjóðs fyrir utan um­­tals­verðar launa­hækkanir til opin­berra starfs­manna, einkum á sveitar­­stjórnar­­stiginu. Hvort tveggja hefur á­hrif á verð­bólgu sem öllum ætti að vera ljóst. Við­­skipta­halli vegna eyðslu okkur hefur á­hrif á verð­bólguna og svo bætist við inn­flutt verð­bólga sem var ó­­hjá­­kvæmi­­leg vegna kovíd. Má því ætla að verð­bólga ætti að vera enn meiri en raun er.“

„Verð­bólga er mjög skað­­leg. Þegar ég var að stofna fjöl­­skyldu var verð­bólga um og yfir hundrað prósent og þannig var á­standið í tuttugu ár. Verð­bólgan nú kemur mest niður á lægst launuðum og ungu fólki sem hefur keypt sína fyrstu eign. Þá lamar það frekari upp­­byggingu at­vinnu­lífsins. Við náum engum tökum á verð­bólgunni með ó­­raun­hæfum kröfum um launa­hækkun og auknum kröfum á frekari út­­gjöld ríkisins.
Lítum í eigin barm og lærum af reynslunni og hættum að djöflast í seðla­banka­­stjóra sem ein­­göngu sinnir skyldum sínum,“ skrifar Brynjar að lokum.