Brynjar segir stjórn­mála­menn skorta kjark til að taka þessar erfiðu á­kvarðanir

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, málar upp svarta mynd af fram­tíðinni ef stjórn­mála­menn fara ekki að taka fastar í taumana gagn­vart kjós­endum sínum.

„Stjórn­­málin í vest­rænum lýð­ræðis­­ríkjum eru í sjálf­heldu. Kröfur um út­­gjöld hins opin­bera eru full­kom­­lega stjórn­­lausar og fæstar þessara þjóða eru sjálf­bærar lengur. Stjórn­­mála­­menn hafa ekki kjark til að taka erfiðar og ó­­vin­­sælar á­kvarðanir sem allir vita samt að eru réttar og nauð­­syn­­legar. Sumir halda að hægt sé að skatt­­leggja sig út úr vandanum eða taka enda­­laust lán og láta komandi kyn­­slóðir borga,“ skrifar Brynjar.

„Gott dæmi um þetta er til­­raun ráða­manna í Frakk­landi í mörg ár að hækka líf­eyris­aldur í 64 ár, sem þykir nú ekki mikið miðað við ævilíkur. Að ó­­breyttu er franskt sam­­fé­lag ekki sjálf­bært en samt er mikill meiri­hluti Frakka á móti þessum nauð­­syn­­legu breytingum. Hingað til hafa frönsk stjórn­völd ekki haft kjark til að fram­­kvæma það ó­­hjá­­kvæmi­­lega. Fram­­tíðin er ekki björt hjá vinum okkar víðast hvar í Evrópu.“

„Nú erum við, eins og aðrar vest­rænar þjóðir, að glíma við verð­bólgu. En við kennum öllu öðru um en sjálfum okkur. Við höfum knúið fram miklu meiri launa­hækkanir en inni­­stæða er fyrir og aukin út­­gjöld hins opin­bera um leið. Það kemur alltaf í bakið á okkur fyrr eða síðar. Við krefjumst að öll opin­ber þjónusta sé ó­­­keypis og að allir út­­lendingar sem stíga hér niður fæti og lifa við bágari kjör í heima­landinu eigi hér rétt á fram­­færslu í boði skatt­­greið­enda svo lengi sem þeir kjósi og jafn­vel teljum það til mann­réttinda,“ skrifar Brynjar.

„Eyðslu­­semin er aldrei sem fyrr og því við­­skipta­halli við út­lönd. Ríkis­­sjóður er auð­vitað rekinn með halla við þessar að­­stæður. Svo erum við ó­­gur­­lega hissa á verð­bólgu og hærri vöxtum og ráðumst á Seðla­banka­­stjóra Þótt við séum að mörgu leyti í betri stöðu en flest önnur ríki gengur þetta ekki mikið lengur. Þjóðin þarf að fylkja sér um kjarkaða stjórn­­mála­­menn en ekki sí­­fellt hoppa á vagn lýð­skrumara, sem virðast hafa yfir­­­tekið stjórn­­málin. Það er henni fyrir bestu til lengri tíma litið. Ef ein­hverjir halda að sósíal­­ismi eða vinstri pólitík sé lausnin þá er það mikill miskilningur. Menn þurfi ekki annað en að kíkja í sögu­bækur til að átta sig á því eða fara yfir rekstur Reykja­víkur­­borgar síðasta ára­tuginn eða svo,“ skrifar Brynjar að lokum.