„Afskaplega sérkennilegt að heimamenn skuli vera hissa á heimsókn ráðherra og yfirmanni almannavarna þegar alvarlegt ástand skapast vegna veðurofsa og telja hana í ofanálag óvænta. Held að vísu að heimamenn séu ekkert hissa og kunni í raun að meta að ráðherra kynni sér afleiðingar veðurofsans og ræði við heimamenn um úrbætur og aðstoð,“ skrifar Brynjar Níelsson aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og deilir fréttHringbrautar frá því í dag.
Austurfrétt greindi frá því í morgun að heimamenn voru hissa á heimsókn ráðherra en Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra fór austur til að sjá tjónið á Reyðarfirði með eigin augum eftir veðurofsann. Þar kom fram að Brynjar hafi verið með í för. Brynjar segir það hins vegar ekki rétt.
„Svona umfjöllun er bara pólitískt stönt fjölmiðla til að þyrla upp moldvirði. Svo væri ágætt að blaðamenn kynntu sér hlutverk Landhelgisgæslunnar í almannavörnum. En þegar blaðamenn ætla að vera sniðugir í þyrlumálum og uppþyrlunum er mikilvægt að fara rétt með staðreyndir. Ég veit fyrir víst að þessi Brynjar aðstoðarmaður, sem margir blaðamenn leggja mikið á sig til að koma höggi á, var bara ekkert með í för. Ástæðan er sú að hann þorir ekki í þyrlu og telur ekki forsvaranlegt að svona mikilvægur maður fyrir þjóðina, taki áhættu með því að fljúga í illviðri,“ skrifar Brynjar.