„Það er margt merkilegt við nýliðnar sveitarstjórnarkosningar. Frjálslyndu umbótaöflin, sem ku vera Samfylkingin, Píratar og Viðreisn samkvæmt eigin skilgreiningu, riðu ekki feitum hesti, hvorki í þéttbýlinu né á landsbyggðinni,“ skrifar Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, í pistli á Facebook.
„Það ætlar greinilega að verða einhver bið á því að Íslendingar komi sér inn í 21. öldina og átti sig á að ESB aðild og woke ofbeldi er lýðræðis- og réttlætismál svo ekki sé minnst á frelsisástina og frjálslyndið sem því fylgir,“ bætir hann við.
„Þess í stað kaus landinn gamla flokkinn hans Jónasar frá Hriflu til að leiða okkur inn í nútímann. Margt gott um þann flokk að segja og margir skynsamir menn þar innan borðs. Aðrir sem náðu góðri kosningu var gamall krati úr Hafnarfirði og góður vinur minn, sem brátt kemst á áttræðisaldur, og svo úrill gamalmenni í Kópavogi, sem vilja ekki breytingar á Hamraborginni. Hver vill ekki hafa Hamraborgina óbreytta, sem er einhver fegursti miðbær á landinu.“
„Ps. Veit að frjálsyndu umbótaöflin eru þreytt á því að ég sé alltaf tönnlast á því því sama. En þau eru mér bara svo hugleikin að ég get ekki hætt,“ skrifar Brynjar að lokum.