Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að orðið „glundroði“ sé það fyrsta sem kemur honum upp í hugann þegar hann lítur yfir pólitíska sviðið á Íslandi í dag.
„Útlit er fyrir að tíu flokkar eigi fulltrúa á Alþingi eftir kosningar. Sumir eins máls flokkar eða eins manns flokkar. Aðrir dæmigerðir tækifærissinnar, sem eru bara í upphrópununum og ala á tortryggni og öfund. Svo er flokkur á fleygiferð sem vill draga okkur inn í svarthol fortíðar og reynir að telja okkur trú um að þá hafi allt verið betra,“ skrifar Brynjar í færslu á Facebook.
„Allir eiga þeir sameiginlegt að ætla að auka útgjöld og umsvif ríkisins upp á tugi og hundruði milljarða á ári. Það á auðvitað að gera með því að skattleggja útgerðina enn meira, hækka fjármagnstekjuskatt og eignaskatta og sérstakan auðmannaskatt á eina prósentið. Miðað við loforðin um útgjöld munu þessir skattar duga skammt. Því þarf að taka frekari lán fyrir komandi kynslóðir að greiða. Það ætti að vekja unga kjósendur til umhugsunar,“ bætir hann við.
Að mati Brynjars þarf við núverandi aðstæður að örva atvinnulífið.
„Það gerist ekki með hærri sköttum og álögum. Það mun draga úr innlendum og erlendum fjárfestingum, veikja samkeppnisstöðu okkar og auka atvinnuleysi. Á endanum mun það hafa verulega slæm áhrif á stöðu ríkissjóð og allt velferðarkerfið. Það dugir skammt að segja bara út í loftið að nóg sé til, eins og sumir gera. Við þurfum hvata til að einstaklingar og félög geti nýtt tækifærin, því enginn skortur er af þeim.“
„Glundroði hefur aldrei leitt til góðs. Hann mun ekki gera það í pólitíkinni frekar en annars staðar. Það er heldur ekkert nútímalegt við hann. Hvað þá að draga upp á yfirborðið fortíðardrauga sósíalismans, eins og margir flokkar á vinstri vængnum keppast um að ger,“ skrifar Brynjar að lokum.