Alþingismaðurinn Brynjar Níelsson skýtur föstum skotum að Þorvaldi Gylfasyni hagfræðings og segir lítið að marka niðurstöður Transparency International um aukna spillingu á Íslandi, byggi samtökin niðurstöður á ályktunum Þorvaldar.
Þetta kemur fram í grein Brynjars á Vísi.is.Þar gerir Brynjar niðurstöðu samtakanna skil en líkt og greint var frá í janúar hefur staða Íslands farið versnandi síðustu ár. Er landið nú í 17. sæti á árlegum lista samtakanna, sem mæla spillingu í flestum ríkjum hems.
Eins og alþjóð veit hefur Sjálfstæðisflokkurinn og Þorvaldur Gylfason eldað grátt silfur saman í þó nokkurn tíma. Það vakti mikla athygli í fyrra þegar fjármálaráðuneytið, að fyrirskipan Bjarna, kom í veg fyrir skipan Þorvaldar í ritstjórastól samnorræna fræðatímaritsins Nordic Economic Policy Review.
Í tilkynningu frá samtökunum sagði að mælingin nái til spillingar í opinbera geiranum og byggist á áliti sérfræðinga og aðila í viðskiptalífinu.
Löndin raðast á listann þannig að 100 stig þýða að spilling sé lítil og eru Danir í efsta sæti, með áttatíu og átta stig. Þar á eftir koma lönd á borð við Finnland og Svíþjóð og Norðmenn lenda í sjöunda sæti. Ísland kemur hinsvegar verst út af Norðurlöndunum og fær 75 stig fyrir árið 2020 en hafði fengið 78 stig árið á undan.
Segir niðurstöðuna ekki standast neina skoðun
„Þar sem þessi mæling og þróun á spillingarvísitölu Íslands stenst augljóslega enga skoðun vaknaði áhugi minn á því hverjir stæðu að baki Íslandsdeild Transparency International, sem kallar sig Gagnsæi, og hverjir mæli þessa spillingu og hvernig,“ skrifar Brynjar.
Ljóst er að honum þykir lítið til koma. Hann segist stuðningsmaður frjálsra félagasamtaka en segir að traust og trúverðugleiki sé forsenda þess að slík félagasamtök fái þrifist.
„Ekki bætir úr skák að þessi fráleita niðurstaða á spillingarvísitölu Íslands byggist á mati Þorvaldar Gylfasonar. Menn sem ólust upp í aftursæti ráðherrabifreiðar og fengið allt upp í hendurnar án þess að þurfa að hafa fyrir nokkru og finnst að auki eðlilegt að klíkubræður og vinir ráði því hverjir verði ritstjórar hagfræðirits sem norrænu ríkin gefa út, eiga síst allra að mæla og meta spillingu hjá öðrum.“