„Hæðni er vandmeðfarin og við erum mis viðkvæm þegar hún beinist að okkur sjálfum. Sumir eru mjög viðkvæmir fyrir glensi og jafnvel fyrir hönd annarra, til dæmis ýmissa minnihlutahópa, eins og hörundsdökka, transfólk, samkynhneigða og annað fólk sem er öðruvísi en fjöldinn og því í viðkvæmri stöðu. Er það mjög skiljanlegt.“
Svona hefst Facebook-færsla Brynjars Níelssonar, aðstoðarmanns ráðherra og fyrrverandi þingmanns, en hann telur að grín í garð fegurðardrottninga hafi gengið of langt.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að stólpagrín hefði verið gert á samfélagsmiðlum að ljósmynd að keppendum Miss Universe Iceland. Athygli vakti hversu líkar þær voru, en margir bentu á að þær voru allar ljóshærðar.
Þetta grín hefur farið fyrir brjóstið á Brynjari, sem segir að þeir sem hafi veirð að stunda grínið séu alla jafna hvað mest móðgaðir og misboðið yfir því að aðrir geri grín. Þar á hann eflaust við um baráttukonurnar Kolbrúnu Birnu Hallgrímsdóttur Bachmann og Eddu Falak. Þess má þó geta að fjölmargir aðrir tóku þátt í gríninu
„Það er nú samt svo að maðurinn er spaugilegt fyrirbæri. Ef við hættum að gera grín hvert að öðru erum við dauðans matur, að minnsta kosti andlega. En hæðni er ekki sama og hæðni. Það er nefnilega til góð hæðni og vond hæðni, alveg eins og það er til gott fólk og slæmt fólk. Ekkert af okkur mannfólkinu er þó fullkomið og við gerum öll mistök í lífinu. Þess vegna er fyrirgefningin mikilvæg.
Ágætt væri ef við gætum dregið úr vondu hæðninni. Vond hæðni er sú sem hefur þann tilgang að niðurlægja fólk og er sett fram af andúð, illgirni og fórdómum. Tilefni þessarar færslu er að ég tók eftir því á samfélagsmiðlum að margir þeirra sem eru alla jafna hvað mest móðgaðir og misboðið yfir glensi annarra keppast hver við annan að niðurlægja með hæðni stúlkur sem keppa í fegurðarsamkeppni Íslands.“
Að lokum viðurkennir Brynjar að ef til vill finnst einhverjum þessi skoðun hans koma úr harðri átt, enda er hann þekktur fyrir að gera mikið grín sjálfur.
„Einhverjum kann að finnast þessi boðskapur koma ur hörðustu átt. Kannski er ég ekki alsaklaus en man þó bara eftir einu glensi þar sem ég gerði hallærislegt grín að áhrifavöldum. Baðst afsökunar á því daginn eftir.“