Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hann sé sammála gagnrýnandanum Jóni Viðari Jónssyni um þættina Verbúðin sem luku göngu sinni á sunnudag.
„Ég er á sama stað og Jón Viðar - finnst þessi sjónvarpssería frekar klén og persónurnar ósannfærandi, sérstaklega stórgrósserar í útgerðinni og stjórnmálamennirnir. En sem saga og skáldverk eru þessir sjónvarpsþættir sjálfsagt ágætir.“
Vitnar hann svo í könnun Fréttablaðsins sem sýnir að meirihluti þjóðarinnar er á móti núverandi kvótakerfi. „Sennilega án þess að vita nokkuð um það eða hvernig það kom til. Þá hefur þeim fjölgað sem eru þeirrar skoðunar að vondir útgerðarmenn hafi stolið af okkur fiskinum,“ segir hann.
„Ekki þarf að deila um hvað það hefur bætt samkeppnisstöðu sjávarútvegsins og verið mikilvægt fyrir hagsmuni þjóðarinnar allrar. Nú finnst mörgum sjálfsagt að ríkisvaldið, sem kom þessu kerfi á, tilkynni þeim sem hafa keypt aflaheimildir, að rétt sé að innkalla þær endurgjaldlaust og selja aftur á grundvelli réttlætis. Það er svona álíka mikið réttlæti í því og að ríkið innkallaði allar fasteignir á höfuðborgarsvæðinu þar sem Ingólfur Arnarson hafði ekkert með það að gera að sölsa undir sig allt svæðið á sínum tíma.“
Margir hafa gert athugasemd við þetta hjá Brynjari, þar á meðal Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, sem segir: „Þessi samanburður við fasteignir er áhugaverður út frá eignaréttinum.“
Brynjar segir að einmitt sé rétturinn til veiða og eignarrétturinn varinn af stjórnarskrá: „Gæti verið hugsanlegt að kveða aftur á um frjálsar veiðar á Íslandsmiðum og hugsanlega hægt að fyrna veiðiheimildir á löngum tíma. En það myndi leiða til hörmunga fyrir sjávarútveginn og þjóðina.“
Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, segir:
„Það eru tvær ástæður til þess að verja þetta gjafakvótakerfi. 1. Þú einfaldlega sérð ekki hina augljósu galla eða 2. þú ert á einhvern hátt hlutdrægur gagnvart kerfinu. Þetta eru einu tveir möguleikarnir. Þú átt þér enga aðra afsökun Brynjar.“
Brynjar segir að hann sé einfaldlega að benda á að þetta kerfi hafi breytt vonlausum sjávarútveg yfir í samkeppnishæfan útveg: „Það geta alir fjárfest í sjávarútvegi og það væri mjög gott ef almenningur og fjárfestar tækju þátt í því. Lengi vel vildu þeir það ekki enda áhættan mikil sem fylgir útgerð og fiskvinnslu. Vonandi breytist það en það gerist ekki meðan stjórnmálamenn tala um að innkalla veiðiheimildir og jafnvel rústa kerfinu.“