Brynjar rýfur þögnina á samfélagsmiðlum: „Konan kvaddi mig í morgun“

Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ekki hættur á samfélagsmiðlum þó að hann sé hættur með lengri færslur um samfélagsmál á Facebook.

Eins og frægt er orðið tilkynnti Brynjar á dögunum að hann væri hættur á Facebook vegna nýja starfsins.

„Jæja, nú þarf ég að kveðja fésbókina tíma­bundið. Í nýju djobbi er ekki gert ráð fyrir á­byrgðar­lausu glensi á sam­fé­lags­miðlum,“ sagði Brynjar. Hann virðist þó enn kíkja af og til á Facebook og setja læk við einn og einn status.

Þá er hann ekki hættur á Twitter, þó að 19 dagar hafi liðið á milli tísta, en hann tísti í gær:

„Konan kvaddi mig í morgun með þeim orðum að hún hafi verið of fljót á sér. Ég veit ekkert hvað hún er að hugsa en ég þarf að nota bílinn.“