Brynjar rífur í sig Sam­herja­upp­ljóstrun: „Ó­trú­lega miklir aumingjar“

Brynjar Níels­son segir blaða­menn sjálf­hverfa og ó­trú­lega mikla aumingja. Þetta kom fram í Harma­gedd­on í gær þar sem Brynjar var gestur og ræddi hina svo­kölluðu skæru­liða­deild Sam­herja. Helga Vala Helga­dóttir var einnig í þættinum.

Brynjar segir vinnu­brögð skæru­liðanna, sem Stundin og Kjarninn hafa meðal annars fjallað um, rétt­mæta vörn. „Þetta er fyrir­tæki sem er djöflast á alla daga,“ segir Brynjar. Málið í heild sinni er nauða­ó­merki­legt að mati hans.

„Stóra málið og sið­leysið í þessu er að vera birta ein­hver gögn, stolin gögn um skoðanir fólks sín á milli,“ segir Brynjar. Málið vekji einungis at­hygli vegna þess að það snýr að blaða­mönnum. Hann segist ekki skilja þessa við­kvæmni í stéttinni.

„Það eru allir að beita sér í ein­hverju, en af því að þetta er Sam­herji og ein­hverjir blaða­menn þá fer allt á annan endann,“ segir hann. Gagn­rýna megi blaða­menn með öllum hætti, þeir séu allt­of við­kvæmir. Að­spurður segir hann að um eðli­leg við­brögð sé að ræða af hálfu Sam­herja:

„Ef ég tel blaða­manninn vera með ó­heiðar­leg vinnu­brögð, fara með rangindi, þá gagn­rýni ég hann, þá fer ég bara beint í hann, hvað er að því?“