Brynjar ó­sáttur með pólitíska um­ræðu á Ís­landi: „Menn standa með krepptan hnefa í ræðu­púlti þingsins og saka aðra um valda­rán“

Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, er ekki spor sáttur með pólitíska um­ræðu á Ís­landi um þessar mundir.

„Halda má því fram með góðum rökum að pólitísk um­ræða hér á landi hafi aldrei verið jafn nötur­leg og inni­halds­laus og nú um stundir. Hún ein­kennist, sem aldrei fyrr, af upp­hrópunum, óða­goti og al­mennu þekkingar­leysi,“ skrifar Brynjar.

„Menn standa með krepptan hnefa í ræðu­púlti þingsins og saka aðra um valda­rán fyrir það eitt að fara að lögum um ríkis­borgara­rétt og stjórn­sýslu­legum um að gæta að jafn­ræði við af­greiðslu erinda hjá Út­lendinga­stofnun. Menn eru sakaðir um að vilja koma á lög­reglu­ríki í við­leitni sinni að setja skýr við­mið og verk­lags­reglur fyrir lög­reglu til að sinna lög­boðinni skyldu sinni til að koma í veg fyrir af­brot og gæta öryggis borgaranna. Svo eru allir fas­istar og út­lendinga­hatarar sem telja ekki hjá því komist að koma ein­hverju skikki á þann mála­flokk svo hægt sé að fram­kvæma lögin sem í gildi eru,“ bætir hann við.

Hann segir um­ræðuna sjaldnast vera um pólitíska sýn og hug­mynda­fræði heldur snýst hún um tor­tryggni og að skapa upp­lausn með því að draga undan stofnunum sem vera með mikil­vægt og vand­með­farið vald.

„Eru þar sumir flokkar meira á­berandi en aðrir. Og ekki er hægt að treysta á að fjöl­miðlar, sem trúa sjálfir að starfi fyrir al­menning og jafn­vel al­mættið, leið­rétti kúrsins og komi um­ræðunni í vit­rænt horf þar sem fram fari mál­efna­leg um­ræða og gagn­rýni. Þeir eru ýmist þátt­tak­endur í öllu bixinu eða endur­varpa því gagn­rýnis­laust.“

„Þegar þessir menn hvíla sig ör­stutt á gífur­yrðum detta þeir í al­menna dyggða­skreytingu þar sem lofað eru öllu fyrir alla og auð­vitað á kostnað annarra en þeirra sjálfra. Sjálfum finnst mér þeir skástir þegar þeir krefjast þess að fá upp­á­halds­drykki sína í mötu­neyti þingsins. Mál­efna­legri verða þeir ekki.

Þessi færsla er ó­tengd heilsu­fars­legum á­föllum mínum síðasta misserið ef ein­hverjir skyldu halda það,“ skrifar Brynjar að lokum.