Brynjar og Vilhjálmur sleppa við að fara í farsóttahús

Brynjar Níelsson, þingmaður og hæstaréttarlögmaður, og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður eru meðal þeirra sem sleppa við að fara í farsóttahús þegar þeir koma til landsins.

Fréttablaðið greinir frá þessu og segir að báðir séu staddir á Spáni þessa stundina eins og svo margir Íslendingar yfir páskana.

Bent er á það að fjölmargir Íslendingar sem verða erlendis um páskana eigi eftir að vera skyldaðir í farsóttahús við heimkomuna. Þar sem heilbrigðisráðuneytið ákvað að fjarlægja meginland Spánar af landalista sóttvarnalæknis yfir hvaða lönd eru skilgreind sem áhættusvæði verða þeir sem eru á Spáni ekki skyldaðir í farsóttahús.

„Þetta er gert í ljósi þess mats ráðuneytisins að skilgreiningin samræmist ekki gildandi reglugerð heilbrigðisráðherra um sóttkví, einangrun og sýnatöku á landamærum Íslands vegna COVID-19 þótt gögn skorti um smitstöðu í einu héraði landsins. Farþegar frá meginlandi Spánar skulu sæta sóttkví í heimahúsi eftir breytinguna en ekki á sóttkvíarhóteli,“ segir í tilkynningunni sem ráðuneytið sendi frá sér í dag.