Brynjar og Helga Vala sammælast um kisur: „Bölvað í­haldið“

Brynjar Níels­son, vara­þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, segist ekkert skilja í Akur­eyringum sem ætla að banna lausa­göngu katta í bænum á næstu árum.

„Við Soffía frænka erum á­kaf­lega ólík og nánast aldrei sam­mála um nokkurn skapaðan hlut. Eitt erum við þó sam­mála um en það er að halda ekki gælu­dýr. Frekar tækjum við börn í fóstur, sem geta þó verið ótta­leg ó­arga­dýr. Okkur þykir samt vænt um hunda og ketti og ekki síst fuglana. Og okkur þykir enn vænna um akur­eyringa,“ skrifar Brynjar á Face­book.

„Ég skil ekkert í Akur­eyringum að ætla að banna köttum að ganga um bæinn. Rökin eru þau að meiri­hluti bæjar­búa vilji það og þeim fylgi skítur og þeir drepi fugla. Með sömu rökum gætu þeir bannað lausa­göngu manna. Mönnum fylgir meiri sóða­skapur en öðrum auk þess sem þeir drepa fleiri fugla en nokkuð annað dýr. Akur­eyringar gætu örugg­lega fengið stuðning frá Þór­ólfi og Svan­dísi fyrir slíku banni,“ bætir hann við.

Hann bendir meiri­hlutanum í Akur­eyri á að kettir hafa gengið lengur lausir en meiri­hlutinn sem vill banna þeim það.

„Við verðum að sætta okkur við að kettir, og reyndar hundar líka, eru hluti af mann­legu sam­fé­lagi og hafa verið svo lengi sem elstu menn muna. Eini vandinn er að sum okkar hugsum ekki nægi­leg vel um þessi dýr, sem kann að vera skýringin á upp­á­komum eins og þessum,“ skrifar Brynjar.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­kona Sam­fylkingarinnar, svarar Brynjari undir þræðinum.

„Bölvað í­haldið“ – svona birtist frelsið ykkar – í að banna og banna,“ skrifar Helga.

Brynjar svara Helgu Völu í léttu gríni og segir: „Svona gerist þegar í­haldið ætlar að elta ykkur í að hoppa upp á vin­sældar­vagnana.“