Brynjar og Björn Leví í hár saman: „Það er eitt­hvað bogið við þetta“

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, og Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, skiptust á skoðunum á Face­book-síðu þess fyrr­nefnda í gær.

Brynjar gerði lands­fund Sam­fylkingarinnar að um­tals­efni þar sem hann sagði að fjöl­miðlar hefðu verið undar­lega á­huga­litlir um fundinn.

„Hann var nefni­lega stór­merki­legur af fleiri en einni á­stæðu. For­maðurinn lýsti því yfir að hann ætli að bjóða kjós­endum upp á skýran val­kost um að færa meiri­hlutann í borginni inn í lands­málin og í raun úti­loka aðra flokka í sam­starf. Takk fyrir það, Logi.“

Björn Leví skrifaði at­huga­semd við færslu Brynjars og skaut létt á hann. Björn Leví sagði:

„Þetta væri kannski merki­legra hjá þér ef þú hefðir hug­mynd um hvað "sam­starf" þýðir. Það er ekki iðkað í sam­ræmi við neina skil­greiningu orðsins á þingi í dag.“

Brynjar svaraði að bragði og sagðist ekki skilja fólk sem er svo upp­tekið af sam­starfi að það úti­loki fyrir fram aðra um sam­starf. „Það er eitt­hvað bogið við þetta, Björn Leví.“

Björn Leví sagði að ríkis­stjórnar­sam­starf og mál­efna­legt sam­starf væri tvennt ó­líkt.

„Þið teljið ykkur kunna ríkis­stjórnar­sam­starf og það sé það eina sem skiptir máli. Þar á bak við er alls konar gísla­taka mála og bola­brögð sem eiga ekkert sam­eigin­legt við sam­starf. Mál­efna­legt sam­starf er svo eitt­hvað sem virðist ekki vera í orða­bókinni hjá ykkur.“

Færslu Brynjars má sjá hér að neðan:

Mér hefur fundist fjölmiðlar undarlega áhugalitlir um þennan landsfund Samfylkingarinnar. Hann var nefnilega...

Posted by Brynjar Níelsson on Sunnudagur, 8. nóvember 2020