Brynjar nýtur sín er­lendis með konum á sjö­tugs­aldri og hjólar í Gunnar Smára: „Enginn skortur á drama þegar svona margar konur eru saman“

„Það er mjög fræðandi og mikil skemmtun að vera með mörgum konum á sjö­tugs­aldri í út­löndum sam­­fellt í marga daga. Mið­aldra konur eru frá­bærar og mjög ó­­líkar mér. Þær hlusta þolin­­móðar og klappa manni á kollinn eins og barni en maður skynjar samt fljót­­lega að maður ræður engu,“ skrifar Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra á Face­book.

„En það er enginn skortur á drama þegar svona margar konur eru saman og mér líður stundum eins og ég sé fastur í raun­veru­­leika­þætti á eyði­eyju þar sem er engin undan­komu­leið. Maður verður smátt og smátt ein af konunum. Ég geng hér undir nafninu Binni Glee, sem mun vera þekktur á­hrifa­valdur og raun­veru­­leika­þátta­­stjarna,“ bætir hann við.

Brynjar, sem er á Ír­landi um þessar mundir segir hins vegar að dramað sé ekki eins magnað þar og hjá vini sínum Gunnari Smára.

„Sem er núna orðinn fórnar­lamb hatur­s­orð­ræðu. Hann rekur samt sjálfur síðu hér á fés­bókinni sem er nánast ein sam­­felld hatur­s­orð­ræða. Þetta hljómar eins og að sí­brota­­maður kvarti yfir því að ein­hver hafi stolið af honum einni krónu. Þegar ég var ungur og las gamla Þjóð­viljann kvörtuðu sósíal­istarnir gjarnan yfir hatur­s­orð­ræðu þeirra sem bentu á hversu mikil ógn sósíal­­isminn væri við líf, heilsu og vel­­ferð fólks,“ skrifar Brynjar

„Ef það er ein­hver huggun fyrir Gunnar Smára þá hefur Bjarni Ben örugg­­lega þurft að þola meiri haturs­um­ræðu og hótanir en hann. Meira að segja ég þarf að þola margt í þessum efnum og ekki væli ég yfir því þótt ég væli oft. Að lokum vil ég segja við þig Gunnar Smári að sósíal­­isminn í dag verður ekkert skárri en sá gamli. Í hug­­mynda­­fræðinni er inn­byggður fas­­ismi eins og sagan kennir okkur. Þetta er gjald­­þrota hug­­mynda­­fræði og hún færir engum rétt­læti og vel­­ferð. Þú ert eins og biss­ness­maður sem kaupir þrota­bú og reynir að selja á­­fram ó­­nýtu vöruna. Þú mátt kalla þennan sann­­leika hatur­s­orð­ræðu mín vegna,“ skrifar Brynjar að lokum.