Brynjar Níelsson telur sjálfan sig vera góðan í glasi

Brynjar Níelsson hlustaði á útvarpið í morgun, nánar til tekið á þjóðmálaumræðuþáttinn Sprengjusand, en þar var smásala áfengis rædd.

Hann telur einkarétt ríkisins á smásölunni vera brot við stjórnarskránni. Brynjar fjallar um þetta í færslu sem birtist á Facebook-síðu sinni í dag

„Í stjórnarskrá Íslenska lýðveldisins er ákvæði í 75. gr. um atvinnufrelsi sem verður ekki takmarkað nema almannahagsmunir krefjist þess. Sitt sýnist hverjum þegar meta á almannahagsmuni og ekki dugir að vísa til meirihlutaskoðunar í þeim efnum. Þá væri lítil stjórnarskrávernd í þessu ákvæði.“

Það sem vekur þó kannski frekar athygli í færslu Brynjars er umræða hans um eigin áfengisneyslu, en hann telur sjálfan sig vera góðan í glasi.

„Sá sem þetta ritar er hvorki undir áhrifum né timbraður. Telur sig farsælan neytanda áfengis og að mati flestra sem til þekkja heldur skárri með áfengi en án þess.“ Skrifar Brynjar sem víkur sér þá að öðrum vörum. Hann vill nefnilega meina að hann stundi ofneyslu á vörum sem fyrirfinnast í matvörubúðum.

„Helsta vandamál hans þessa stundina er ofneysla vara sem seldar eru í Hagkaup og Bónus, eftirlitslaust. Hefur heilsu hans hrakað talsvert síðustu misseri þess vegna en hann hyggst taka sig á enda ber hann sjálfur ábyrgð, ekki forsvarsmenn auðvaldsins að baki þessum verslunum.“