Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir engan skort á stjórnmálamönnum á Íslandi sem halda þeir séu réttlátari og sanngjarnari en aðrir.
„Þeir eru gjarnan mjög reiðir og ofstopinn skín í gegn. Einkennandi fyrir þá er að stunda hvers kyns upphlaup til að skapa sundurlyndi og úlfúð í samfélaginu. Í þeim tilgangi eru upphrópanir algengar þar sem farið er frjálslega með sannleikann svo ekki sé meira sagt. Sannleikurinn má ekki koma í veg fyrir að réttlætið nái fram að ganga. Úti í hinum stóra heimi heitir þetta að vera popúlisti,“ skrifar Brynjar í færslu í dag.
„Stundum hefur það gerst að þessir réttlætisriddarar hafa komist til valda, oftast með ofbeldi en þó þekkt að það gerist með lýðræðislegum hætti. Það hefur aldrei reynst vel þegar ofstækisfólk með réttlætið að vopni kemst til valda. Ofstopinn og mannfyrirlitningin verður allsráðandi,“ bætir Brynjar við og segir söguna alltaf endurtaka sig.
„Það þarf ekki mjög sögufróðann mann til að átta sig á því. En einhverra hluta vegna endurtekur sagan sig alltaf með nýjum kynslóðum,“ skrifar Brynjar að lokum.