Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, er svo sannarlega stoltur af sínum manni og deilir afrekum hans á liðnu kjörtímabili á Facebook. Hann segir að það þurfi mann eins og Jón í borgarstjórastólinn.
„Þessi dómsmálaráðherra tók við embætti fyrir ári síðan. Pólitískir andstæðingar mótmæltu hástöfum þeirri skipun sem endaði með undirskriftasöfnun þegar hann réð sér aðstoðarmann. Ástæðan var sú að þetta væru ekki réttu mennirnir til að takast á við kynferðislegt ofbeldi og bæta réttarstöðu brotaþola,“ skrifar Brynjar.
„Það er nú samt þannig að í tíð þessa dómsmálaráðherra hefur verið gert meira í þessum málaflokkum en áður hefur þekkst, eins og sjá má hér. Þá lagði hann fram frumvarp á síðasta vorþingi um bætta réttarstöðu brotaþola sem var samþykkt samhljóða. Þá hafa verið tekin stór skref í eflingu lögreglu, ákæruvalds og dómstóla í héraði til að auka hagkvæmni og skilvirkni í réttarkerfinu til hagsbóta fyrir alla,“ bætir hann við.
„Það þarf svona mann í borgarstjórastólinn. Þá værum við ekki föst í snjósköflum dögum saman eða í mygluðu húsnæði. Það dugar ekki að syngja sig út úr vandanum eins og meirihlutinn í borginni reynir gjarnan. Í hvert sinn sem þetta ágæta fólk fer í fjölmiðalviðtöl langar mann að hoppa ofan í bjútiboxið og loka á eftir sér,“ skrifar Brynjar að lokum.