Brynjar vill ná meiri árangri í ræktinni: „Er ekki bara best að taka stera?“

Brynjar Níels­son hefur farið mikinn á sam­fé­lags­miðlum undan­farið þar sem hann lýsir raunum sínum úr líkams­ræktar­salnum – og auð­vitað búnings­klefanum. Frægar eru færslurnar hans um getnaðar­lim sinn og skemmtilegum ummælum Bubba Morthens. Hann var vægast sagt áhugalaus um að sjá það allra heilagasta á Brynjari.

Þá greindi hann frá því fyrr í vikunni að hann hafi hrakið baðvörð úr vinnunni með færslum sínum. Hann baðst afsökunar á því í nýlegri færslu en inntak hans var einungis það að vekja athygli á hinni lokuðu umræðu um kynfæri karla: „Ég var bara að opna um­ræðuna um typpið, sem hefur verið hálf­gert tabú og ein­kennst af nei­kvæðni og for­dómum. Það má ekki einu sinni taka myndir af typpum, hvað þá deila þeim,“ sagði Brynjar eftirminnilega.

Það sem Brynjar vill þó greini­lega helst er ein­fald­lega að til­einka sér betri líf­stíl og ná líkam­legum árangri með því að mæta í líkams­ræktina.

Það virðist þó ganga brösug­lega, ef marka má færslur hans á Face­book undan­farin. Þar lýsti hann því meðal annars að hafa dottið af hlaupa­brettinu í sinni fyrstu ferð í líkams­ræktina í tölu­verðan tíma.

Þá hafa lyftingarnar ekki heldur farið vel með hann – raunar segist hann hafa bætt á sig kílóum vegna há­vaðans sem stafar af ó­hljóðum þeirra sem stunda hvað þyngstar lyftingar í ræktar­salnum.

Greini­legt er að Brynjar er farinn að huga að öðrum og öllu ó­hefð­bundnari val­kostum þegar kemur að árangri í líkams­ræktinni. Hann varpar upp spurningu í anda slagorðs Framsóknarflokksins á Twitter.

Gefum Brynjari orðið: „Þegar ég puða í ræktinni með tak­mörkuðum árangri hugsa ég stundum eins og fram­sóknar­maður. Er ekki bara best að taka stera?“

Afar fróð­legt verður að fylgjast með því hvort Brynjar láti slag standa og út­vegi sér stera til þess að reyna að tóna sig til og ná árangri. Það yrði á­huga­vert fram­hald af raunum hans í líkams­ræktinni.