Fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins Brynjar Níelsson velti því fyrir sér á Facebook í dag hvort fjölmiðlamaðurinn Björn Ingi Hrafnsson væri byrjaður að drekka aftur þar sem honum brá svo í brún yfir því að þeir væru orðnir skoðanabræður þegar það kemur að sóttvörnum.
„Nú fjölgar þeim þeim sem efast um allar þessar sóttvarnaraðgerðir, meira að segja Björn Ingi á Viljanum. Ég var farinn að halda að Bingi væri byrjaður að staupa aftur, en svo mun ekki vera. Ég og frú Andersen höfum verið púuð niður undanfarin misseri fyrir að tala fyrir frelsi og réttindum manna og leyft okkur að efast um að nauðsynlegt væri að ganga svo langt í sóttvarnaragerðum og gert var,“ skrifar Brynjar.
„Það er þekkt í sögunni að stjórnvöld hafi fundið með tiltölulega auðveldum hætti réttlætingu fyrir að takmarka frelsi og réttindi borgaranna. Og síðan er gengið á lagið. Nú má búast við skæðri flensu þótt enginn viti það með vissu. Því þurfum við áfram að vera með meiri íþyngjandi takmarkanir en aðrir. Allt okkar líf snýst jú um Landspítalann og vellíðan fólks þar. Það er eins og enginn annar geti sinnt heilbrigðisþjónustu nema LSH,“ bætir Brynjar við.
„Þegar þessi veirufjandi er horfinn ætla ég að spá því að stjórnvöld muni ganga mjög langt í takmörkun á frelsi og réttindum manna með vísan til hamfarahlýnunar þótt það hafi verið miklu hlýrra hjá okkur fyrir nokkur hundruð árum,“ heldur Brynjar áfram meðan hann segir það sé ekki rétt að skammast í Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni lengur. Ábyrgðin er annars staðar.
„Annars skil ég ekkert í því af hverju er verið að skammast í Þórólfi núna. Það er ríkisstjórnin sem tekur ákvarðanir og ber ábyrgðina. En það er gott að við eigum miklu betri sóttvarnasérfræðinga en aðrar þjóðir. Djö er gott að vera frjáls maður,“ skrifar Brynjar að lokum.