„Það getur vel verið að Andri Snær Magnason sé bara rithöfundur úti í bæ. En rithöfundar úti í bæ eiga að vita að pólitískur aðstoðarmaður ráðherra er ekki embættismaður,“ segir Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og fyrrverandi þingmaður.
Hann og Andri Snær Magnason hafa skipst á orðum á Facebook í dag. Málið byrjaði þegar Brynjar gaf til kynna að Andri væri fasisti. En það segir Brynjar í færslu sinni á Facebook þar sem hann ræðir góða veðrið á Mallorca. þar sem hann er staddur.
„Hér eru menn ekki áhyggjufullir að heyra yfir loftslagsbreytingum eða Glóbal Warming. Þeir hafa heldur engan Andra Snæ, eða hvað hann heitir sá ágæti maður, til að leiðbeina sér. Þó eru þeir alvanir fasisma frá tíma Francosar, sem réði hér fyrir ekki svo löngu síðan,“ skrifaði Brynjar.
Andri Snær svaraði honum fullum hálsi. „Ég skil ekki alveg. Þú ert opinber embættismaður, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Ég er rithöfundur úti í bæ. Af hverju ertu að tengja mig við svona stjórnmálastefnu?“
Brynjar segir það geti vel verið að Andri Snær sé „bara rithöfundur úti í bæ“ en hann eigi að vita að pólitískur aðstoðarmaður ráðherra sé ekki embættismaður.
„Svo er ég varaþingmaður og hef sama rétt og aðrir stjórnmálamenn til að tjá mig,“ segir Brynjar.
Hann segir ástæðu sína fyrir því að hann hafi nefnt rithöfundinn í síðustu færslu hans væri að „þessi þöggunarkrafa hans og slaufun í tengslum við Staksteinaskrif um loftslagsmál eru í eðli sínu fasísk stjórnarmið.“
„Þessi hvatning og áeggjan rithöfundarins úti í bæ til þöggunar og slaufunar var og er mjög þekkt í fasískum ríkjum. Þar þola menn ekki rökræðu í frjálsu samfélagi heldur er ein skoðun rétt og oftar en ekki vísindaleg. Held að rithöfundurinn úti í bæ hljóti að átta sig á þessu,“ segir Brynjar.
Einn í athugasemdum hvetur Brynjar til þess að blanda sér drykk og „hætta þessu tuði.“ Brynjar svarar því að það vilji svoleiðis til að hann sé einmitt á fyrsta glasi.
Þá blanda fleiri sér í orðaskipti þeirra tveggja. Sveinn Andri, lögmaður, spyr Brynjar: „Af hverju er pólitískur aðstoðarmaður að funda með fulltrúum ákæruvalds frá Namibíu sem eru í embættiserindum á Íslandi?“
Brynjar segir Svein ekki eiga að tala um það sem hann viti ekkert um. „Þau voru ekki í embættiserindum og vertu svo ekki að blaðra um það sem þú veist ekkert um.“
Þá blandar Glúmur Baldvinsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins, sér einnig í málið. „ Það að hvetja blaðamenn til verkfalls af því að ritstjóri viðrar öndverða skoðun er í besta falli fasískt bull og í versta falli mikilmennskubrjálæði telji viðkomandi að þeir taki mark á honum. Enn eitt skelfilegt dæmið um firringu okkar nútímasamfélags,“ skrifaði hann í athugasemd við færslu Brynjars.
Sjá má færslu Brynjars hér að neðan: