Brynjar móðgaður út í Kolbrúnu: „Bitrir og fúllyndir karlmenn mættu vera fleiri“

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra og hæstaréttarlögmaður, hefur hrósað Kolbrúnu Bergþórsdóttur, leiðarahöfundi Fréttablaðsins, í hástert undanfarnar vikur.

Brynjar er á sama máli og Kolbrún um ýmislegt en í leiðara Fréttablaðsins í dag skrifar Kolbrún meðal annars um góða leiðtoga og nefnir til dæmis Dag B. Eggertsson borgarstjóra og Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í því samhengi. Þau fá stundum yfir sig fúkyrðaflaum og segir Katrín að það sé einkum frá „bitrum og fúllyndum karlmönnum“ eins og hún orðar það.

„Það er reyndar of­fram­boð af þeim í þessu landi en það er önnur saga sem ekki verður sögð hér,“ segir Kolbrún í leiðara sínum.

Brynjar virðist hafa tekið þessi orð sérstaklega til sín ef marka má færslu hans á Facebook.

„Ég sem er alltaf að hrósa Kolbrúnu og svo ræðst hún svona harkalega að mér. Bitrir og fúllyndir karlmenn eru vannýtt auðlind og mættu vera fleiri. Eina offramboðið er af fólki sem heldur að það sé svo miklu betra en aðrir. Mikilvægi okkar bitru og fúllyndu verður ekki viðurkennt fyrr en við stofnum hagsmunafélag, sem verður auðvitað rekið á kostnað skattgreiðenda.“