Brynjar mætti í dulargervi í gærkvöldi og var óþekkjanlegur

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður og aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, segist hafa mætt í dulargervi þegar hann skellti sér á leik Vals og ÍBV í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta í gærkvöldi.

„Ég hef ekki beinlínis verið lukkutröll fyrir félagið mitt, Val, í gegnum tíðina. Félagið hefur verið sigursælt í öllum greinum síðustu ár og einu leikirnir sem ekki hafa unnist er þegar ég mæti á völlinn. Sumir leikir hafa snúist upp í sigur eftir að ég hef verið sendur heim í hálfleik,“ segir Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni hvar hann slær á létta strengi.

„Það kom því ekki til greina að ég mætti í þessa mikilvægu körfuboltaleiki á móti Tindastóli. Margir félagsmenn voru tilbúnir til að leggja í púkkið og greiða mér pening svo ég héldi mig fjarri Hlíðarenda. Ég ákvað hins vegar að mæta á handboltaleikinn í gær. Það var talið í lagi því að þetta var ekki oddaleikur og félagið hefði nokkra leiki upp á að hlaupa þótt hann tapaðist.“

Brynjar segir að þau undur og stórmerki hafi gerst að Valur spilaði einhvern sinn besta leik frá stofnun félagsins árið 1911.

„Ástæðan kann að vera sú að ég mætti í dulargervi og var óþekkjanlegur,“ segir hann en bætir svo við á öllu alvarlegri nótum:

„Það gleður mig óendanlega mikið að koma niður á Hlíðarenda og sjá alla þessa glæsilegu iðkendur og stuðningsmenn og ekki síst fylgjast með þessum sjálfboðaliðum sem leggja mikið á sig fyrir félagið. Gleður mig líka að fylgjast með þessum frábæru stuðningsmönnum mótherjanna. Þótt ég sé íhaldsmaður er ég búinn að átta mig á að það var ekki allt betra í gamla daga.“