Brynjar lýsir yfir stuðningi við tvo frambjóðendur: „Helgi Áss hefur mótaðar skoðanir og óhræddur við að tjá þær“

Stuðningsyfirlýsingum rignir nú yfir frambjóðendur í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem fram fer í dag. Niðurstöður eiga að liggja fyrir á morgun.

Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður innanríkisráðherra og fyrrverandi þingmaður, hefur nú bæst í hóp þeirra sem styðja ákveðna frambjóðendur. Athygli vekur að hann lýsir ekki sérstaklega yfir stuðningi við neinn í fyrsta sætið.

Brynjar skrifar í grein á vef Vísis að það væri mikill styrkur fyrir borgarbúa að fá inn Helga Áss Grétarsson lögfræðing. Helgi Áss er orðinn frægur fyrir að koma Ingó Veðurguð og Samherja til varnar í umræðunni.

„Helgi Áss hefur mótaðar skoðanir og óhræddur við að tjá þær. Slíkir menn eru ekki á hverju strái nú um stundir. Hann er skákmeistari og sér marga leiki fram í tímann, sem er mjög mikilvægt í pólitík og gæti nýst mjög vel í skipulagsmálum borgarinnar,“ segir Brynjar.

Á Facebook lýsir hann svo yfir stuðningi við Söndru Hlíf Ocares. „Ég fann að það er einnig heilmikill töggur í þessari konu, Söndru Hlíf Ocares, þegar hún pakkaði mér saman í rökræðu í Valhöll í fyrra. Hún talaði af þekkingu og fór ekki eins og köttur kringum heitan graut í umræðunni,“ segir hann. „Hún gæti styrkt borgarstjórnarflokk sjálfstæðismanna, eins og Helgi Áss.“