Brynjar lofar Sigríði Andersen og skýtur föstum skotum á ákveðin öfl innan Sjálfstæðisflokksins

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skýtur nokkuð föstum skotum að því sem hann kallar hin frjálslyndu öfl í Sjálfstæðisflokknum.

Brynjar gerir slæmt gengi Sigríðar Andersen, fyrrverandi ráðherra, í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að umtalsefni í færslu á Facebook-síðu sinni. Sigríður sóttist eftir 2. sætinu á lista flokksins en varð ekki á meðal átta efstu frambjóðenda.

Í færslu sinni segir Brynjar:

„Ég tek eftir því á samfélagsmiðlunum að það er ósvikinn fögnuður "frjálslyndu aflanna" í Sjálfstæðisflokknum með úrslitin í prófkjörunum, nema kannski í Kraganum þar sem grámosinn glóir. Það tókst að losa sig við "íhaldskerlinguna" og "andkonuna", Sigríði Andersen.“

Brynjar segir að staðreyndin sé samt sú að Sigríður sé frjálslyndari en allt þetta fólk til samans.

„Má segja að hún hafi ein síns liðs barist að einhverjum krafti fyrir raunverulegu frelsi einstaklingsins til orða og athafna. Sigríður Andersen er ekki fullkomin en hefur, ólíkt mörgum öðrum, skoðanir og berst fyrir stefnu flokksins. Svona stjórnmálamenn eru ekki á hverju strái, eins og sagt er. Þeir eru eiginlega alveg horfnir og froðan og tækifærismennskan að verða allsráðandi,“ segir Brynjar sem sjálfur endað í 5. sæti í prófkjörinu.

Margir taka undir þessi orð Brynjars í athugasemdum við færsluna. Í þeim hópi er fjölmiðlakonan Erna Ýr Öldudóttir sem hefur meðal annars starfað fyrir Morgunblaðið, Viljann og Útvarp Sögu.

„Þið eruð mitt fólk og ein helsta ástæðan fyrir því að ég var harðákveðin í að vera í flokknum og styðja hann. Ég er enn að vona að þú takir sætið sem þú fékkst, Brynjar minn, fyrir okkur sem styðjum þig. Sigríður Andersen lætur engan bilbug á sér finna og ég er sannfærð um að hún á afturkvæmt, þrátt fyrir þetta bakslag núna. Það hafa verið óvenjulegir og erfiðir tímar fyrir talsmenn frelsisins, en það kemur að því að fólk mun kunna að meta okkur aftur,“ segir hún.