Brynjar leitaði til sérfræðings: Greiningin kom honum verulega á óvart

Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, þykir nokkuð umdeildur en um það verður ekki deilt að hann er mikill húmoristi.

Brynjar lætur gamminn geisa reglulega á Facebook þar sem hann segir frá því sem á daga hans drífur, oftar en ekki á gamansaman hátt. Í dag greinir hann frá því að hann hafi leitað til sérfræðings í hegðun, framkomu og atferli fyrir stjórnmálamenn – enda ekki seinna vænna nú þegar aðeins nokkrir mánuðir eru til kosninga.

„Ég skynjaði kvíða hjá sérfræðingnum þegar ég mætti en jafnframt talsverða gróðavon enda tæki þessi meðferð og ráðgjöf örugglega langan tíma. Sérfræðingurinn byrjaði á að upplýsa mig um að stjórnmál snerust að miklu leyti um tilfinningar. Almennur truntuskapur, fúllyndi og kaldhæðni væri því ekki leiðin til að ná til kjósenda. Hann bætti þó við að ég væri í eigin persónu allt öðruvísi og mýkri maður en fram kæmi á samfélagsmiðlum. Jafnvel bara þokkalega geðslegur. Lyklaborðið væri greinilega minn versti óvinur og ráðlagði mér að leggja því fram yfir kosningar, að minnsta kosti. Þetta hafði ég nú allt fengið heyra áður frá Soffíu frænku og það ókeypis.“

Brynjar segir að ráðgjöfin hafi bara átt eftir að versna. Þannig væru myndbirtingar af honum í kosningabaráttunni ekki til góðs. Hann hefði einfaldlega ekki útlitið með sér.

„En myndir af mér sem barni gætu gengið. Það er að vísu bara til ein mynd af mér á barnsaldri en þá var ég bara átta mánaða og berrassaður á gæruskinni. Held að það gangi ekki í dag. Þá sagði sérfræðingurinn að ég ætti ekki að slá á létta strengi í pólitískri umræðu. Ekkert væri jafn aumkunarvert og stjórnmálamenn sem væru að reyna að vera fyndnir. Ég ætti að hlusta meira á aðra og segja helst það sem fólk vildi heyra,“ segir Brynjar.

Hann kveðst hafa fengið margra tíma meðferð og hundruð þúsunda króna meðferð og niðurstaða sérfræðingsins hafi verið um það bil þessi: „Sem sagt sú að ég ætti annað hvort að ganga í Samfylkinguna eða hætta í stjórnmálum.“