Brynjar segir Moggann vera eina almennilega fjölmiðilinn: „Ætti að leggja til skylduáskrift“

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, segir þá sem eru „rétt­hugsandi“ vera upp­tekna við að lýsa því yfir að þeir lesi ekki Morgun­blaðið en hann segir nokkra slíka þó hafa keypt Morgun­blað gær­dagsins til þess að lesa við­tal við Katrínu Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra.

Hann segist hafa heimildir fyrir því að nokkrir hafi „laumast í skjóli myrkurs“ til þess að kaupa blaðið eða ein­fald­lega lesið blað ná­grannans til að lesa við­talið og „at­huga hvort of­stækis­maðurinn og fas­istinn Sig­mundur Davíð væri að skrifa eitt­hvað í blaðið sem gæti komið þeim úr jafn­vægi.“

Að sögn Brynjars var við­talið við Katrínu á­gætt en að hún hafi „eðli­lega“ gert lítið úr á­greiningi innan Vinstri grænna þar sem tveir úr ellefu manna þing­flokki styddu ekki ríkis­stjórnina. „Þetta væri ekki meiri á­greiningur en í öðrum flokkum og benti sér­stak­lega á "ó­ró­legu deildina" í Sjálf­stæðis­flokknum,“ segir Brynjar og bætir við að hann kannast við ýmsar deildir innan Sjálf­stæðis­flokksins en sú ó­reglu­lega hafi farið fram hjá honum.

„Til er ein deild sem má kalla "of ró­legu deildina". Svo er auð­vitað fýlu­púka­fé­lagið, þar sem færri komast að en vilja. Einnig er farin að myndast rétt­hugsunar­deild og for­réttinda­deild þar eins og í öðrum flokkum,“ segir hann enn fremur.

„Menn geta haft ýmsar skoðanir á Mogganum og ég klóra mér sjálfur oft í hausnum þegar ég les mbl.is. En nú er samt svo komið að Mogginn er eigin­lega eini al­vöru fjöl­miðillinn sem er í boði í dag. Það lesa hann allir, líka þeir sem eru upp­teknir að því að láta vita að þeir geri það ekki. Ætti að leggja til skyldu­á­skrift. Það er þekkt í okkar sam­fé­lagi að hafa skyldu­á­skrift að fjöl­miðli, með einum eða öðrum hætti.“