Brynjar laumar sér í um­ræður á vef Sósíal­ista­flokksins: „Virkar á mann eins og sér­trúa­söfnuður“

Eins og minkur í hænsna­búi laumaðist Brynjar Níels­son, að­stoðar­maður dóms­mála­ráð­herra, inn á um­ræðu­vef Sósíal­ista­flokks Ís­lands

„Það er fátt skemmti­­legra en að kíkja á um­­ræðurnar á vef Sósíal­ista­­flokksins. Skiptir ekki máli hvort fé­lagarnir eru ungir eða reynslu­­miklir og hafa lifað tímanna tvenna, lang­­skóla­­gengnir eða ó­­­menntaðir, allir eru þeir meira og minna úr tengslum við veru­­leikann. Svona hópur virkar á mann eins og sér­trúar­söfnuður sem hefur gjör­­sam­­lega málað sig út í horn,“ skrifar Brynjar.

„Nú eru þeir mjög upp­­­teknir af fá­tæktar­um­ræðunni, sem er sér­­stakt því hvergi er minni fá­tækt að finna í heiminum en hér á landi. En fá­tækt er afar teygjan­­legt hug­­tak og við­miðanir breytast. Sósíal­istar segja að fá­tækt sé mannanna verk en ekki náttúru­lög­­mál. Þeir ættu að þekkja það best allra því þeir hafa undan­tekningar­laust náð að gera sín sam­­fé­lög fá­tæk á met­­tíma.“

„Nú er það svo að við fæðumst öll alls­­laus og fá­tæk. Eina leiðin til að komast úr fá­tækt er að fram­­leiða eitt­hvað til að selja öðrum. Það gerist ekki undir sósíalskri efna­hags­­stjórn. En það er ekki það versta við sósíal­is­mann, heldur öll kúgunin sem ó­­hjá­­kvæmi­­lega fylgir stjórn­­lyndinu og of­s­tækinu,“ skrifar Brynjar að lokum.