Brynjar: Landsþekktum frekjuhundum misboðið í máli Helga Seljan

„Auðmýktin, sem er alltaf verið að krefjast af öðrum, er engin. Fingurinn rekinn framan í andlitið á þeim sem brotið var gegn, öskrað og stappað niður fótum eins og óuppalin börn sem fá ekki allt.“

Þetta segir Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um mál fjölmiðlamannsins Helga Seljan sem braut gegn siðareglum RÚV samkvæmt úrskurði siðanefndar stofnunarinnar. Úrskurður féll í gær og voru brot Helga talin alvarleg. Samherji kærði Helga og tíu aðra starfsmenn RÚV en Helgi situr einn í súpunni samkvæmt úrskurðinum.

Stjórn Félags fréttamanna sendi frá sér ályktun í dag þar sem áhyggjum var lýst vegna úrskurðarins og því haldið fram að siðareglur stofnunarinnar séu barn síns tíma. Úrskurðurinn vakti talsverða athygli og ljóst að sitt sýnist hverjum um málið. Brynjar segir að vinstri mönnum hafi alla tíð verið umhugað um að setja siðareglur og lagt á það áherslu að brot gegn þeim eigi að hafa afleiðingar.

„Þeir létu þó aldrei í veðri vaka að siðareglurnar ættu bara að gilda um alla aðra en þá sjálfa, eins og berlega hefur komið í ljós síðustu misseri. Í hvert sinn þegar þeir teljast brotlegir við siðareglur er það stórkostlegt hneyksli og aðför að tjáningarfrelsinu. Aðrir mega ekki einu sinni tala illa um náungann í einkasamtölum hvað þá hafa þá skoðun að kynin geti ekki unnið á sama stað svo vel sé.“

Brynjar segir að nú hafi Helga Seljan orðið á að brjóta siðareglur þessa „forréttindakompaníns“ og það með alvarlegum hætti samkvæmt úrskurði siðanefndar.

„Landsþekktum frekjuhundum á vinstri vængnum varð auðvitað misboðið. Sjálfhverfan og frekjan náði nýjum hæðum og stóru orðin ekki spöruð, eins og gjarnan er hjá vanstilltu fólki. Og engum þeirra dettur nú í hug að þetta alvarlega brot eigi að hafa afleiðingar í för með sér, Ekki einu sinni RÚV sem ber ábyrgð á starfsmanninum.