Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, kemur Sigmundi Davíð, formanni Miðflokksins, til varnar í máli þar sem hann var settur á sömu mynd og Adolf Hitler og Benito Mussolini.
„Rektor Verzlunarskólans er ekki beinlínis að slá í gegn. Það er ekki hægt að slíta myndina úr samhengi því hún talar sínu máli. En myndin lýsir hversu umræðan um þjóðerniskennd eru á miklum villigötum. Ég þykist vita að stjórnmálafræðikennarinn í Versló, eins og blaðabörnin og vinstri menn almennt, líti svo á að mennirnir á myndinni með Sigmundi hafi verið hægri menn. En þeir voru bara alræðissinnaðir sósíalistar og öfgafullir þjóðernishyggjumenn sem vildu ekki lúta Moskvuvaldinu. Öfgafulla þjóðernishyggju í lýðræðisríkjum nú um stundir er helst að finna í löndum Suður Ameríku þar sem sósíalistar stjórna.“ segir Brynjar á Facebook-síðu sinni.
Hann vill meina að Sigmundur sé hvorki hægri maður né sósíalisti heldur skynsemishyggjumaður, sem hafi oft hitt naglan á höfuðið.
„Hins vegar er það aumur þjóðkjörinn fulltrúi sem hefur ekki vott af þjóðerniskennd í hjartanu. Hæfileg þjóðerniskennd er stjórnmálamönnum nauðsynleg til að gera þjóð sinni eitthvert gagn. Sigmundur ber virðingu fyrir lýðræðinu og réttarríkinu og á því ekkert sameiginlegt með þessum mönnum á myndinni. Hann hefur verið kosinn til að gæta hagsmuna sinnar þjóðar og hefur gert það vel. Hann er ekki hægri maður, hvað þá öfga hægrimaður. Hann er heldur ekki sósíalisti heldur fyrst og fremst skynsemishyggjumaður. Svo getum við alltaf deilt um hvað sé skynsamlegt á hverjum tíma. En Sigmundur hefur oft hitt naglann á höfuðið.“