Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið að þreifa fyrir sér á Twitter að undanförnu. Ef marka má færslu Brynjars á Facebook gefur hann Íslendingunum sem þar láta gamminn geisa ekki beint háa einkunn.
„Að vísu kann ég ekkert á miðilinn, frekar en aðra miðla, en skynja að þar eru þeir áberandi sem hafa talið sjálfum sér trú um að tilheyri frjálslyndum umbótaöflum. En þegar betur er að gáð eru þeir álíka frjálslyndir og umbótasinnaðir og gamlir vinstri róttæklingar, sem voru að eigin mati í stórkostlegri frelsisbaráttu,“ segir hann.
Hann segir að miðað við það sem hann hefur séð séu margir þeirra sem nota Twitter illa haldnir af pólitískri rétthugsun – þetta fólk sé raunar allsráðandi.
„Því er stórkostlega misboðið ef önnur sjónarmið eru reifuð og krefjast gjarnan einhverra viðurlaga eða útskúfunar. Það trúir einnig að það endurspegli vilja þjóðarinnar, slík er sjálfhverfan og það kallast lýðræðishalli ef þeirra sjónarmið verða ekki ofan á. Trúa einnig að þau séu uppfull af mannúð og hafi ríkari réttlætiskennd en aðrir. Þess vegna þarf ekki alltaf að fara að lögum til að ná markmiðum. Heitir það borgaraleg óhlýðni,“ segir Brynjar sem endar færsluna á þessum orðum:
„En þetta er í raun þekkt uppskrift af ofstækismanninum, sem er stórhættulegur lýðræðinu, ef einhverjir skyldu vera búnir að gleyma henni.“
Hef aðeins verið að þreifa fyrir mér á Tvitter. Að vísu kann ég ekkert á miðilinn, frekar en aðra miðla, en skynja að...
Posted by Brynjar Níelsson on Mánudagur, 12. október 2020