Brynjar Níelsson, varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins og aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra, segist þessa dagana vera í enn einni hringferð Sjálfstæðisflokksins um landið – nú á Vestfjörðum.
„Skil ekkert hvað er alltaf verið að draga mig með enda hrista landsbyggðamenn bara hausinn þegar ég birtist. Ástæðan mun vera sú að dómsmálaráðherra þarf að hafa mig með til að líta betur út sjálfur. Svo vill hann hafa menn sér við hlið sem ekki hafa ólyst á öli,“ segir Brynjar og slær á létta strengi á Facebook-síðu sinni.
Hann segir svo á léttu nótunum frá ógöngum sem hann lenti í þegar hann skellti sér í sund í morgun.
„Ég fór með umhverfisráðherra í sundlaugina á Patró í morgun. Ætlaði að leigja sundskýlu en engin til í minni stærð. Var þó heimilt að fara í laugina án sundfata þar sem vömbin náði að hylja það sem ekki má sjást. Umhverfisráðherra gekk hins vegar inn í baðklefa kvenna sem mun vera óheimilt nema að tilkynna það fyrirfram við starfsmann. Ekki það að konunnar þar hafi tekið eftir einhverju óvenjulegu með innkomu hans“