Brynjar: Hvað næst, frum­varp sem tryggir að upp­vaskið skiptist jafn milli kynjanna?

„Stjórn­semi ís­lenskra stjórn­mála­manna virðast engin tak­mörk sett, jafn­vel þeirra sem merkja sig við frjáls­lyndi. Er hún rétt­lætt með því að til­gangurinn sé svo góður. Trúa því að þeir séu að búa til betra sam­fé­lag. Eru svo­kallaðir sam­fé­lags­hönnuðir og þvinga alla inn í sitt sam­fé­lag í stað þess að leyfa fólki að vera sæmi­lega frjálsu og þróa líf sitt og um­hverfi eftir hentug­leika.“

Þetta segir Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, í pistli á Face­book-síðu sinni. Þar gerir Brynjar meðal annars frum­varp um svo­kallaða kynja­kvóta að um­tals­efni sem og frum­varp um jafna skiptingu fæðingar­or­lofs.

„Al­þekkt í þessu sam­bandi eru svo­kallaðir kynja­kvótar, sem að vísu eiga bara við þar sem færri konur eru. Þekktur er kynja­kvóti í stjórnum einka­hluta­fé­lagi sem stjórn­mála­mönnum í öðrum löndum hefur ekki dottið í hug. Nú stendur til að skylda for­eldra til að taka jafn langt fæðingar­or­lof og skipta þá engu hags­munir barnsins eða for­eldranna,“ segir Brynjar sem heldur á­fram:

„Til eru þing­menn sem eru með böggum hildar yfir því að í ný­fram­lögðu frum­varpi til kosninga­laga verði flokkar sem bjóði sig fram ekki skyldaðir til að hafa jafn marga að hvoru kyni í fram­boði,“ segir Brynjar sem endar færsluna á þeim orðum að hann hafi heimildir fyrir því að í smíðum sé frum­varp sem tryggja eigi að upp­vask, þvottur, mat­reiðsla, skúringar og önnur heimilis­störf skiptist jafnt á milli kynjanna.

„Svo verði sett á lag­girnar eftir­lits­stofnun til að tryggja að farið sé að þeim lögum. Sel það að vísu ekki dýrara en ég keypti en kæmi mér samt ekki á ó­vart.“