Brynjar hríðfellur í prófkjöri Sjálfstæðismanna

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir hefur náð forystunni í æsispennandi prófkjöri Sjálfstæðisflokksins sem lauk klukkan 18 í kvöld. Talning stendur nú yfir og hefur Guðlaugur Þór Þórðarson haft um það bil 100 atkvæða forystu alveg þangað til nýjustu tölur voru lesnar upp um klukkan 23. Þá hafði Áslaug tekið fram úr.

Dilja Mist Einarsdóttir er með nokkuð örugga stöðu í 3. sæti en nú bregður svo við að Hildur Sverrisdóttir er komin í fjórða sætið og þar með upp fyrir Brynjar Níelsson. Ekki nóg með það heldur hefur þingmaðurinn Birgir Ármannsson einnig náð Brynjari og er nú í 5. sæti. Brynjar er því fallinn niður í 6. sæti og úr öruggu þingsæti.

Talin hafa verið 4857 atkvæði af um það bil 7500. Áslaug hlaut 2333 atkvæði falla nú til Áslaugar í 1. sæti. Guðlaugur Þór er með 3291 atkvæði í 1.-2. sæti. Í þriðja sæti er enn Diljá Mist með 1895 atkvæði. Í fjórða sætið með 1906 atkvæði er Hildur Sverrisdóttir. Þá skaust Birgir Ármannsson yfir Brynjar Níelsson og er nú í 5. sæti.

Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrr í kvöld vantaði Hildi aðeins 17 atkvæði til að komast upp fyrir Brynjar Níelsson, sitjandi þingmann og hrifsa af honum fjórða sætið. Hún var brött þegar blaðið heyrði í henni fyrr í kvöld og nú er ljóst að hún er í 4. sæti en Brynjar í sjötta.

Þrettán manns eru í fram­­boði í próf­­kjörinu sem er sam­eigin­­legt fyrir bæði Reykja­víkur­­kjör­­dæmi. Greint verður frá næstu tölum klukkan 23:00 í kvöld eða mögulega fyrr, gangi talning vel.

Áslaug Arna þakkaði fyrr í kvöld fylgjendum sínum fyrir stuðninginn í Facebook færslu. „Ó­trú­lega stolt af sjálfri mér, fólkinu mínu og bar­áttunni. Því­líkur kraftur,“ sagði Ás­laug meðal annars.