Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, kemur Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra til varnar í nýjum pistli á Facebook.
Andstæðingur Jóns kepptust við í gær að kvarta yfir því að hann hafi ákveðið að taka að sér flóttafjölskyldu frá Úkraínu. Drógu margir heillindi Jóns í efa.
„Það er mikið til sama fólkið sem er alltaf svo reitt og misboðið á samfélagsmiðlunum. Það trúir að þessi reiði og ólund sé vegna þess að það hafi svo ríka réttlætiskennd. En það er ekki svo heldur er það sjálfmiðað og stíflað úr frekju. Þetta er gjarnan fólk úr mennta- og menningarelítunni sem þykist vera að berjast fyrir þá sem höllum fæti standa en er í raun bara illa haldið af öfund og frekju og með alvarlegt óþol gagnvart skoðunum annarra,“ skrifar Brynjar.
„Nú gerðist það að gamli björgunasveitarmaðurinn, Jón Gunnarsson, sló frekjurnar út af laginu með því að skjóta skjólshúsi yfir vandalaust fólk frá Úkraínu tímabundið fyrir vin sinn, sem var að hjálpa þessu fólki. Svo sem ekkert merkilegt eða fréttnæmt við það nema hvað frekjuliðinu var misboðið yfir þessu.“
„Þeir sem þekkja Jón vita að hann er bóngóður maður sem hefur ríka þörf fyrir að bjarga öðrum. Hann hefur lagt á sig ómælda vinnu áratugum saman við að bjarga og aðstoða fólk í hremmingum. Og líka þeim sem þarf ekki að bjarga og kemur fyrir að menn hafa þurft að bjarga sér á flótta undan björgunaráráttu Jóns,“ skrifar Brynjar að lokum.