Brynjar hjólar í Sósíal­ista­flokk Gunnars Smára – Andri svarar honum fullum hálsi

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, gefur Sósíal­ista­flokk Ís­lands ekki háa ein­kunn. Það þarf svo sem lítið að koma á ó­vart enda hefur Brynjar reglu­lega gefið öðrum flokkum en Sjálf­stæð­lokknum á baukinn.

Sam­kvæmt ný­legum skoðana­könnunum er Sósíal­ista­flokkurinn á barmi þess að komast inn á þing í kosningunum næsta haust. Í könnun MMR í lok nóvember mældist fylgi flokksins til dæmis 5,0%. Gunnar Smári Egils­son stofnaði flokkinn á­samt hópi fólks árið 2017.

„Ef fer fram sem horfir mun fjölga á Al­þingi í hópi smá­flokka sem stunda tækis­færis stjórn­mál í gegnum fjöl­miðla. Fæstir byggja á ein­hverri hug­mynda­fræði eða fram­tíðar­sýn og þrífast á því að sá tor­tryggni og ala á öfund og nei­kvæðni. Kann að vera að sá sem þetta skrifar sé að kasta steinum úr gler­húsi þegar nei­kvæðni er annars vegar en látum það liggja á milli hluta að sinni,“ segir Brynjar sem kallar Sósíal­ista­flokkinn eins manns flokk.

„Sá flokkur má eiga það að hann byggir á ein­hverri hug­mynda­fræði og sýn. Hún er að vísu skelfi­leg og á á­líka erindi í nú­tímann og það að menn taki aftur upp lurkinn til að ná sér í eigin­konu,“ segir Brynjar sem hefur enga trú á sóíal­isma.

„Menn sem trúi því að sósíalískt sam­fé­lag byggt á kenningum og hug­mynda­fræði Marx og Leníns komi til með að bæta kjör launa­fólks og gera sam­fé­lagið betra hafa annað hvort verið í dái meira og minna alla sína ævi eða bera ekkert skyn­bragð á manninn og mann­legt sam­fé­lag.“

Andri Sigurðs­son, stjórnar­maður í fé­laga­stjórn Sósíal­ista­flokksins, svarar færslu Brynjars og segir að á­róður hægrisins gegn sósíal­isma sé nánast alltaf sá sami og snúist um Lenín, Stalín og að sósíal­ismi sé gamal­dags.

„Þessu er tönglast á þrátt fyrir að kapítal­ismi sé aug­ljós­lega eldri hug­mynda­fræði sem veldur bók­staf­lega kreppum á 4-7 ára fresti og setur sam­fé­lagið á hliðina. Hug­mynda­fræði sem setur gríðar­leg völd og auð í hendur ör­fárra og velur í leiðinni fá­tækt og skorti. Hug­mynda­fræði sem er á góðri leið með að eyða öllu lífi af yfir­borði jarðar vegna hlýnunar. Mögnuð hug­mynda­fræði það,“ segir Andri sem bætir við að allt sem er ein­hvers virði í sam­fé­laginu; réttindi og fé­lags­leg kerfi séu sósíal­isma eða bar­áttu sósíal­ista og verka­fólks að þakka.

„Réttindi sem hafa verið dregin úr köldum krumlum hægrisins og hinna ríku þrátt fyrir mikla and­stöðu. Þar má nefnda átta tíma vinnu­dag, bann við barna­þrælkun, helgar- og sumar­frí, fé­lags­legt hús­næði, opin­bert heil­brigðis­kerfi og menntun. Hvað hefur hægrið fram að færa? Einka­væðingu? Milljarðar­mæringa sem grafa undan lýð­ræðinu? Ekkert nema meiri ó­jöfnuð og fá­tækt.“