Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, vandar kollegum sínum á Alþingi ekki kveðjurnar í nýjum pistli. Brynjar skrifar þar meðal annars um þingsályktunartillögu 19 þingmanna sem varðar aðgengi einstaklinga sem ferðast til Íslands að þungunarrofi.
Sjá einnig: Inga Sæland sorgmædd: „Með slíkum ólíkindum að ég er nánast kjaftstopp“
Inga Sæland, formaður Flokksins, skrifaði um málið í Morgunblaðið í dag þar sem hún lýsti hneykslun sinni. Brynjar tekur undir með Ingu en þó á örlítið öðrum forsendum.
„Fjölbreytileikinn í sýndarmennsku þingmanna eykst jafnt og þétt þegar kosningar nálgast. Nú hafa 19 þingmenn, og þið megið geta í hvaða flokkum þeir eru, lagt fram þingsályktunartillögu um að ekki bara konur heldur einstaklingar frá öðrum löndum fái gjaldfrjálsa þjónustu til þungunarrofs nú þegar þessir sömu þingmenn eru að sligast af áhyggjum yfir aðstöðuleysi og mönnunarvanda í heilbrigðisþjónustunni,“ segir Brynjar.
Brynjar segir að þarna komi skýrlega fram viðhorf þessara þingmanna til skattgreiðenda.
„Þetta er ekki fólk sem stritar í sveita síns andlits heldur tekjustofn á hlaðborði stjórnmálamanna. Nema þeir haldi að eitthvert evrópskt sjúkratryggingakort sem svífi um jörðina greiði fyrir þjónustuna en ekki skattgreiðendur,“ segir hann.
Rísa Björk Brynjólfsdóttir, þingkona utan flokka og fyrrverandi þingmaður VG, er fyrsti flutningsmaður tillögunnar en auk hennar standa þingmenn úr röðum Vinstri grænna, Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum að henni. Nái tillagan fram að ganga verður heilbrigðisráðherra falið að einstaklingar sem ferðast hingað til lands í því skyni að gangast undir þungunarrof fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu.
Þetta verði bundið því skilyrði að viðkomandi megi ekki gangast undir þungunarrof vegna lögbundinna hindrana í heimalandinu og uppfylli skilyrði í lögum um þungunarrof. Þá þurfi viðkomandi að geta framvísað evrópska sjúkratryggingakortinu.
„Mér skilst að þessi gjafmildi á fé annarra sé tilkomin til að tryggja mannréttindi fólks sem felast í því að ráða yfir eigin líkama, jafnvel þótt það þurfi að eyða lífi annarra til að tryggja þessi mannréttindi. Á sama tíma krefjast þessir sömu þingmenn að lögreglan hundelti fullráða fólk sem stundar kynlífsviðskipti og stingi því í steininn. Þessi mikilvæga mannréttindaregla að ráða yfir eigin líkama gildir greinilega ekki um alla. Það er einhver lapsus í þessari röksemdafærslu, sem eru ekki nýmæli í íslenskri pólitík,“ segir Brynjar að lokum.