Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, hefur ákveðið að blanda sér í umræðuna um svifryksmengun og bílaumferð í Reykjavík. Fjölmargir íbúar miðborgarinnar hafa verið að kalla eftir því að minnka bílaumferð og er Brynjar á öðru á máli.
„Fræga fólkið, sem býr miðsvæðis í borginni með alla þjónustu í kringum sig og þarf aldrei að fara lengra en upp í Efstaleiti, agnúast stöðugt úti einkabílinn. Það er orðið svo viðkvæmt að það nær ekki andanum ef bíll keyrir fram hjá eða einhver leysir vind nálægt því,“ skrifar Brynjar.
„Fræga fólkið er auðvitað upptekið af sjálfu sér og kemur því reglulega á framfæri að það sé gáfaðra, frjálslyndara og meira frelsisþenkjandi en aðrir þegar það gerir hlé á því að tala illa um aðra og hlæja að því um leið, helst í beinni útsendingu. En fræga fólkið veit ekki að einkabíllinn er mesta frelsismál alþýðu manna frá upphafi. Alveg eins og niðurgreiddur leikskóli var í raun mesta jafnréttismál allra tíma. En hvað varðar það um annað fólk?“ skrifar Brynjar að lokum.