Brynjar hissa á við­brögðunum: „Eins og föður­lands­svikari eða jafn­vel morðingi“

Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, kveðst vera hissa á þeim hörðu við­brögðum sem grein hans um sótt­varna­að­gerðir yfir­valda hlaut í gær. Gagn­rýndi hann þær hörðu að­gerðir sem gripið hefur verið til og sagðist jan­framt vera hættur með­virkni með að­gerðum yfir­valda.

Sjá einnig: Brynjar fær á baukinn eftir um­deildan pistil: Ekki mann­réttindi að mega ganga um og smita aðra

Brynjar ræddi málið við Sig­mar Guð­munds­son í Morgunút­varpinu á Rás 2 í morgun.

Sig­mar spurði Brynjar meðal annars hvað hann ætti við þegar hann segðist vera hættur með­virkni með að­gerðum yfir­valda.

„Það felur í sér að ég hef sann­færst með tímanum að þessar að­gerðir, þessar miklu al­mennu og í­þyngjandi að­gerðir, séu til meira ó­gagns en gagns þegar á heildina er litið,“ sagði Brynjar sem sagðist leyfa sér að hafa þá skoðun og það hafi heldur betur vakið við­brögð.

„Sem segir manni raun­veru­lega hvað lýð­ræðið og frelsið er við­kvæmt, að maður skuli leyfa sér að hafa ein­hverja aðra skoðun þá ertu nánast orðinn eins og, tjah, föður­lands­svikari eða jafn­vel morðingi. Ég hef sann­færst smátt og smátt – ekki það að það eigi ekki að bregðast við – heldur er ég bara að segja að ég tel okkur hafa farið ranga leið og ekki bara okkur heldur allan heiminn. Og við sitjum hugsan­lega uppi með meira tjón heldur en það sem við erum að reyna að bjarga í kringum veiruna.“

Brynjar sagðist í við­talinu í morgun hafa tekið fram hverjir væru í raun­veru­legri hættu vegna veirunnar.

„Það eru þeir sem eru mjög aldraðir, mjög veikir fyrir, aðrir eru bara ekkert í hættu. Flestir veikjast ekki neitt, aðrir mjög lítið og svo erum við með mjög af­markaðan hóp,“ sagði Brynjar sem sagðist hreint ekki viss um að rétta leiðin væru þessar í­þyngjandi al­mennu að­gerðir sem hann telur hafa veru­leg á­hrif á líf og heilsu fólks.

„Það eru á þriðja tug þúsunda sem missa lífs­viður­væri. Börn og ung­menni eru meira og minna í ein­angrun, halda menn að þetta hafi ekki nein á­hrif,“ spurði Brynjar sem sagðist hafa skilning á við­brögðum sótt­varna­yfir­valda. Ef hann sjálfur yrði settur í teymi þar sem mark­miðið væri að beita öllum ráðum til að hindra út­breiðslu veirunnar myndi hann líka gera það sama.

„Ég væri ekkert að hugsa um hitt, fá­tæka fólkið, ég er bara að hugsa um að ein­hver veiran verði ekki hérna sem að vísu dugar ekki því hún verður alltaf hérna. Menn geta haft ein­hverja aðra skoðun en ég á þessu, en við­brögðin við því að vera á annarri skoðun og hvernig lætin verða. Ég er bara svo­lítið hissa á því,“ sagði Brynjar meðal annars en við­talið má hlusta á í heild sinni hér.