Brynjar: „Hann er þó góður maður, amk á kostnað annarra“

„Gáfnaljósið og skattakóngurinn, Hallgrímur Helgason, sparar ekki stóru orðin frekar en venjulega. Það er svo áhyggjulaust líf að hafa trygga framfærslu frá skattgreiðendum alla ævi við að leika sér við áhugamálin.“

Svona hefst Facebook-færsla Brynjars Níelssonar, fyrrverandi þingmanns og núverandi aðstoðarmanns dómsmálaráðherra, um rithöfundinn og listamanninn Hallgrím Helgason. Brynjar segir að Hallgrímur lifi á skattgreiðendum og gagnrýnir gagnrýni hans á dómsmálaráðherra, yfirmann Brynjars.

„En Hallgrímur veit greinilega ekki að Alþingi setur lög og ráðherra fer með framkvæmdavaldið. Hér á landi er því ekki rekin útlendingastefna Jóns Gunnarssonar, heldur stefna þverpólitískar nefndar sem varð að lögum frá Alþingi. Hallgrímur er kannski ekki eins mikið gáfnaljós og menn halda. En hann er þó góður maður, amk á kostnað annarra. Hann veit að það er nóg til og er örugglega sjálfur til i að greiða hærra skatta.“

Færslan hefur skapað miklar umræður, en þess má geta að fjöldi fólks tekur upp varnir fyrir Hallgrím.