Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þeir sem gera skoðanakannanir séu enn einu sinni stærstu taparar kosninganna.
„Annað hvort skortir mjög á fagmennsku eða þetta er eins og hver önnur upplýsingaóreiða og falsfréttir til að skapa hugrenningatengsl á móti Sjálfstæðisflokknum. Gæti verið blanda af hvoru tveggja,“ segir Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni.
Hann óskar Framsóknarflokknum til hamingju með árangurinn sem var góður víðast hvar um landið.
„Ég get glaðst með þeim enda er ég að hluta íhaldsmaður. Það er ákveðin snilld að Framsókn gat selt sig sem miðjuflokk. En maður getur þó glaðst yfir því að það er ekki vinstri bylgja í landinu.“
Um niðurstöðuna fyrir Sjálfstæðisflokkinn segir hann þetta:
„Úrslitin eru vonbrigði fyrir Sjálfstæðisflokkinn þótt í einstaka sveitarfélögum megi hann vel við una. Við sjálfstæðismenn verðum að vera duglegri að tala fyrir stefnunni, sem á sterkan hljómgrunn hjá landsmönnum. Við höfum efni á þvi að vera með kassann úti og eigum ekki að láta hrekja okkur úti í horn í umræðunni af mönnum sem hafa enga sýn, lítið sem ekkert fram að færa, hvergi náð árangri og eru lítið skárri en venjulegir snákasölumenn. Maður hefur á tilfinningunni að tilvist þeirra byggist á andúð á Sjálfstæðisflokknum og best sé að stofna fjölmiðil til að koma henni á framfæri og helst á kostnað skattgreiðenda.“