Brynjar gefur til kynna að Andri Snær sé fasisti: „Eða hvað hann heitir sá ágæti maður“

Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður ráðherra og fyrrverandi þingmaður, gefur til kynna að rithöfundurinn Andri Snær Magnason sé fasisti.

Þetta kemur fram í færslu sem Brynjar birti á Facebook-síðu sinni, sem fjallar þó að mestu um dvöl hans á eyjunni Mallorca og er á léttari nótunum.

„Hitinn á eyjunni hefur verið bærilegur og rokkar á milli 29-33 gráður á öllum mælum á svæðinu. Samkvæmt stærstu fréttastofunum er þó hitamet hér sem annar staðar, sem mun vera um og yfir 40 gráður samkvæmt hitamælunum sem staðsettir er við þotuhreyflana á flugvöllunum.“ skrifar Brynjar, sem vill meina að fólk á eyjunni sé ekki hrætt við loftlagsbreytingar.

„Hér eru menn ekki áhyggjufullir að heyra yfir loftslagsbreytingum eða Glóbal Warming. Þeir hafa heldur engan Andra Snæ, eða hvað hann heitir sá ágæti maður, til að leiðbeina sér. Þó eru þeir alvanir fasisma frá tíma Francosar, sem réði hér fyrir ekki svo löngu síðan.“

Þetta skrifar Brynjar sem virðist þarna gefa til kynna að honum finnist skoðanir Andra vera fasískar.