Brynjar gefur stjórn­laga­ráði ekki háa ein­kunn: „Svona verk má ekki vinna með rass­gatinu“

„Vinnu­brögðin skipta miklu máli og svona verk má ekki vinna með rass­gatinu,“ segir Brynjar Níels­son, þing­maður Sjálf­stæðis­flokksins, í færslu á Face­book-síðu sinni.

Þar gerir hann stjórnar­skrár­málið að um­tals­efni, en eins og kunnugt er hefur al­menningur leitað að nýju stjórnar­skránni að undan­förnu. Í októ­ber verða átta ár liðin frá því að þjóðin greiddi at­­kvæði um nýja stjórnar­­skrá í þjóðar­at­­kvæða­­greiðslu og í nóvember verður ára­tugur frá því að blásið var til þjóð­fundar um stjórnar­­skrár­­mál í að­­draganda þess að stjórn­laga­ráð tók til starfa.

„Sé á sam­fé­lags­miðlum að Sósíal­ista­flokkur Ís­lands er ötulasti bar­áttu­hópurinn fyrir stjórnar­skrá Stjórn­laga­ráðs, sem sumir kalla nýju stjórnar­skrána. Gamal­dags sósíal­istar og aðrir vinstri menn halda nú sem fyrr að pólitísk hug­mynda­fræði þeirra sé nú­tíminn og eigi heima í stjórnar­skrá,“ segir Brynjar og bætir við:

„Í mínum huga á ein­göngu að vera í stjórnar­skrá reglur og um­gjörð um stjórn­skipan lýð­veldisins og grund­vallar mann­réttindi sem vernda þegnana gagn­vart yfir­völdum. Mann­réttindi eru ekki eitt­hvað sem ríkis­valdið út­hlutar okkur á kostnað skatt­greið­enda, eins og sumir virðast halda.“

Brynjar segir að margir vilja breyta ýmsu og skýra sumt betur varðandi stjórnar­skrána – meira að segja hann en það skipti máli hvernig það er gert.

„En vinnu­brögðin skipta miklu máli og svona verk má ekki vinna með rass­gatinu. Það er ekki góður bragur á því að ráð­herra skipi leik­menn, eins á­gætir og þeir eru, til að vinna úr hug­myndum al­mennings þar sem með­limir stjórn­laga­ráðsins með ó­líkar hug­myndir um margt díluði sín á milli svo allir fengu eitt­hvað fyrir sinn snúð, eins og einn með­limur stjórn­laga­ráðs sagði ein­hvers staðar, þó með að­eins öðru­vísi orða­lagi,“ segir Brynjar og nefnir að til dæmis þurfi að laga og skýra betur kaflann um hlut­verk og vald for­setans.

„Það er al­ger­lega ó­við­unandi að for­setinn hverju sinni, og ekki síst þessir fjöl­mörgu for­seta­fram­bjóð­endur sem dúkka reglu­lega upp, haldi að vald og hlut­verk for­setans sé eitt­hvað annað og meira en gert er ráð fyrir í stjórnar­skránni. Svo væri á­gætt að hafa skýrt á­kvæði um þjóðar­at­kvæða­greiðslu svo for­setinn sé ekki að vand­ræðast hverju sinni þegar kröfur koma á hann um að synja stað­festingu laga frá Al­þingi.“

Færsla Brynjars hefur vakið tals­verða at­hygli og eru ekki allir sáttir við orða­lag Brynjars um að full­trúar stjórn­laga­ráðs hafi unnið með rass­gatinu. Páll Valur Björns­son, sem sat á þingi fyrir Bjarta fram­tíð á árunum 2013 til 2016, segir til dæmis:

„Þú vilt sem­sagt meina að sá hópur sem kosinn var til setu í Stjón­laga­ráði og samdi nýju stjórnar­skrána hafi gert það með rass­gatinu. Það er al­deilis fal­legur dómur yfir vinnu þessa hóps sem reyndar vann stjórnar­skrána eftir á­bendingum og til­lögum sem fleiri þúsund Ís­lendingar lögðu fram á þjóð­fundum. Meira segja Sjálf­stæðis­menn tóku þátt í þeirri vinnu.“

Brynjar stendur fast við sín orð og svarar að bragði: „Þegar samin er stjórnar­skrá á sumar­mánuði af fólki með ó­líkar hug­myndir og túlkuðu hug­myndir al­mennings með sínum hætti er verið að vinna með rass­gatinu. Skiptir engu máli þótt þau hafi getað leitað til sér­fræðinga um tækni­leg at­riði, Páll Valur.“

Sé á samfélagsmiðlum að Sósíalistaflokkur Íslands er ötulasti baráttuhópurinn fyrir stjórnarskrá Stjórnlagaráðs, sem...

Posted by Brynjar Níelsson on Þriðjudagur, 22. september 2020