Brynjar fullur iðrunar: Biður landsmenn afsökunar

Brynjar Níelsson, fyrrverandi þingmaður, segir að ofbeldisumræðan hafi þróast mjög hratt hér á landi og sjálft ofbeldishugtakið verið víkkað talsvert út frá því sem áður var.

„Hefur eiginlega þróast með svipuðum hætti og umræðan um um umhverfis- og loftslagsmál. Nú er svo komið að almenn leiðindi telst ofbeldi, sem er ekki gott fyrir mig. Ég er fullur iðrunar og ætla því að nota tækifærið að biðja landsmenn afsökunar á öllum þessum leiðindum árum saman,“ segir Brynjar í færslu á Facebook-síðu sinni.

Brynjar segir að það séu kannski ekki málsbætur fyrir hann, en sjálfur komist hann ekki með tærnar þar sem stjórnarandstaðan hefur hælana þegar kemur að leiðindum.

„Hún tekur þingið í gíslingu með endalausum ræðum um ekki neitt þannig að meirihlutinn kemur engum málum í gegn. Ástæðan er sennilega sú að stjórnarandstaðan trúir því að hún endurspegli þjóðarviljann þrátt fyrir að fáir greiði þeim atkvæði í kosningum,“ segir hann.

Hann bætir við að málþóf geti stundum átt við og verið réttlætanlegt og því þurfi ekki að fylgja eintóm leiðindi.

„En stjórnarandstöðunni hefur ekki tekist vel upp. Innblásnar ræður, en óskiljanlegar, og uppfullar af heift um mannvonsku og óheiðarleika annarra skorar mjög hátt í leiðindaskalanum. Þau munu væntanlega komast í frægðarhöll leiðindaskjóða, jafnvel á undan mér. En þetta er víst allt gert til að auka virðingu þingsins, sem er þeim mikið hjartans mál,“ segir Brynjar og segir svo að lokum:

„Af hverju getur stjórnarandstaðan ekki verið jafn skemmtileg og Bubbi vinur minn eða Edda Falak, sem eru alveg laus við hvers kyns ofbeldi?“